wordpress visitor counter

Hjákátleg hundalógík

Pappalögga í Baunalandi

Margir halda að ég hati lögguna – ég geri það ekki; ég hata bara heimskar fasistalöggur, sem halda að þeir séu í þessu starfi til að kúga almenning og viðhalda þeirri kúgun, sem stjórnmálamenn troða ofan í kok á okkur. Svoleiðis pappalöggur eru ekki einu sinni skeinipappír í mínum huga, heldur jafn ómerkilegar og hverskonar nýðingar í okkar samfélagi. Og þær löggur – og þær eru til, skal ég segja ykkur – sem nýðast á unglingum í krafti valds síns, eru hinir verstu barnanýðingar í mínum huga. Svo ætlast þessir dindlar að þeim sé sýnd virðing! Þeir sem misbeita valdi sínu á ungu fólki, eins og ég hef orðið vitni að, ættu að fá að upplifa eigin viðbjóð – eða kannski bara fjölskyldur þeirra? Kannski þeir áttuðu sig þá á því, hvað nauðgun þeirra er að gera fyrir unga fólkið okkar og framtíð þeirra.

Nú stígur fram ein pappalöggan, sem fékk að vera í byssuleik í Kaupmannahöfn og lýsir aðför að Kristjaníubúum, eins og ekkert sé sjálfsagðara en að kúga heilt samfélag, sem í áratugi hefur fengið að lifa í friði – og í sátt og samlindi – og jafnvel nota til þess aðferðir, sem nasistar voru stoltir af.

Ég fékk að fylgjast með sprengiefnaleitarhundum og fíkniefnaleitarhundum en mest þótti mér til lögregluhundanna koma. Þeir eru þjálfaðir til að leita uppi fólk og sönnunargögn og ná mönnum og yfirbuga þá. Hundarnir finna allt og alla. Þeir standa kyrrir meðan sá sem þeir finna gerir það. Ef hann hreyfir sig fara þeir samstundis í hann. Vísir.is

Bitið í Bretlandi

Hvaða sönnunargögn er maðurinn að tala um, sem sprengjuleitar- og fíkniefnahundar finna ekki? Og er í lagi að hundur rífi í sig fólk, af því að hann er hundur, á meðan lögregluþjónn á erfiðara með að ráðast á fólk og berja það í spað? Ekki hefur mér þótt það vera vandamál á Íslandi, að lögreglan kunni ekki að misbeiti valdi sínu. Er það kannski von lögregluþjóna á Íslandi að hafa vopn eins og hund til að benda á, þegar fórnarlömb þeirra reyna að kæra hrottalega meðferð? Svona fasisti á ekkert heima í lögreglunni – kannski á Sogni, en alls ekki sem þjónn lýðræðisins.

Að lögregluþjónn skuli láta svona út úr sér, segir mér bara eitt: Hann ætti að þjóna undir allt öðrum fána en þeim íslenska – og kannski er hann bara nokkrum áratugum á eftir? Ég hef alltaf vitað, að lögregluþjónar þessa lands eru frekar sljóir – en að vera mörgum áratugum á eftir mannréttindabaráttunni, finnst mér helst til slakt.

Hundar sem valdbeitingartæki, rétt eins og rafbyssur og önnur skotvopn, ættu ekki að þekkjast í lýðræðisríki. Sérstaklega ekki í meðhöndlun íslensku lögreglunnar, sem hefur sýnt að henni er ekki einu sinni treystandi til að nota piparúða rétt.

Til að setja þetta í samhengi, birti ég hér nokkrar myndir af hundum, sem þessi fasistalögga finnst svo frábært að horfa á vinna. Er einhver munur?

Í þjónustu nasista

Í þjónustu Austurþýskalands

Í þjónustu Bandaríkjanna á heimavelli

Í þjónustu Bandaríkjanna í Írak

Í þjónustu Bresku krúnunnar

Tengdar færslur:

  1. “nú á ég hvergi heima” Þannig endar ein vinsælasta drykkjuvísa (að öðrum ólöstuðum), sem ég...
  2. Rasistahjal og kannabisgrein Má í raun ekki segja að Hæstiréttur hafi dæmt Ómar...
  3. Fyrirspurn vegna fjármálaóreyðu Þar sem ég get ekki hætt, sendir ég eftirfarandi fyrirspurnir...
  4. Byltingin og börnin Okkur er oft sagt, að “byltingin étur börnin sín”… Að...

Um höfund

Skorrdal

Aðrar færslur eftirSkorrdal

Vefsíða höfundarhttp://skorrdal.is

22

12 2009

1 Athugasemdir Bættu við þinni ↓

Neðsta er nýjasta athugasemdin

  1. Tryggvi HjörturNo Gravatar #
    1

    heyrðu góurinn…
    rakst á þessa síðu hjá þér og mér finnst þessi röksemdafærsla ,,Hundar sem valdbeitingartæki, rétt eins og rafbyssur og önnur skotvopn, ættu ekki að þekkjast í lýðræðisríki. Sérstaklega ekki í meðhöndlun íslensku lögreglunnar, sem hefur sýnt að henni er ekki einu sinni treystandi til að nota piparúða rétt.”
    bara algjört bull, ég held að þú haldir að við lifum í landi þar sem að allir eru rosa stilltir og prúðir, það er bara ekki þannig.
    Veit t.d. um eitt dæmi… um lögreglumann sem að stöðvaði bíl við umferðareftirlit. Þegar að hann kom að bílnum sá hann að þessi maður var uppdópaður og með afsagaða haglabyssu í farþegasætinu… hvað átti hann að gera? segja bíddu aðeins, ætla að bjalla í þyrluna og láta sérsveitina koma? ööö nei… það er bara ekki að fara að ganga. íslenska lögreglan þarf að geta varið sig hverri stundu og það gerist ekki með einhverri meisdollu og kylfu… annað dæmi: gíslataka og skotum hleypt af haglabyssu í hnífsdal. ef að byssumaðurinn hefði komið út, hvað hefðu þeir gert? kastað í hann meisinu??

    Við lifum ekki í svona stilltu og prúðu landi !



Þín athugasemd



Switch to our mobile site