wordpress visitor counter

Leiðinleg pólitík

Ég held þeir geri þetta allt með ráðnum huga – stjórnmálamennirnir okkar. Rífast eins og hundar og kettir þegar myndavélar og hljóðnemar eru nærri – en kjassast svo hver utan í öðrum í setustofum þings eða borgarstjórnar; hlægja að heimsku okkar kjósenda, að trúa þeim orðum sem frá vörum þeirra hrýtur. Síðan láta þeir okkur sjálf um að rífast, vera ósátt og skipast í lið, svo þeir geti haldið áfram að arðræna okkur – og það á okkar kostnað.

Pólitíkin á Íslandi er leiðinleg – pólitíkin á Íslandi er ekki pólitík, heldur hagsmunagæsla.

Engar tengdar færslur.

Um höfund

Skorrdal

Aðrar færslur eftirSkorrdal

Vefsíða höfundarhttp://skorrdal.is

19

01 2010

9 Athugasemdir Bættu við þinni ↓

Neðsta er nýjasta athugasemdin

  1. RósaNo Gravatar #
    1

    Starfsmaður Alþingis sagði félögum sínum að hann hefði verið á tali við ungan þingmann sumarið 2008, sem hefði sagt að í 95% mála væru allir sammála á Alþingi. Einungis í 5% mála væru þingmenn að rífast.

  2. SkorrdalNo Gravatar #
    2

    Og þessi 5% geri ég fastlega ráð fyrir að séu stór hluti þess tíma, sem myndavélar og hljóðnemar eru nærri. Kæmi mér amk. lítið á óvart.

    Þessi samtryggingarmáttur stjórnmálamanna hefur gengið mjög nærri lýðræðinu í okkar landi – og það er tími til kominn að flokks- og frændræði víki fyrir fólkinu í landinu, hinu raunverulega lýðræði.

  3. magusNo Gravatar #
    3

    éttablaðið, 15. mar. 2010 06:00

    Opnið augun
    Ólafur Þ. Stephensen skrifar:

    Á Íslandi þrífst skipulögð glæpastarfsemi. Það er staðreynd, sem ekki þarf lengur að deila um. Í fréttaskýringu í helgarblaði Fréttablaðsins var fjallað um þann heim, sem hér er orðinn til, þar sem konum er haldið í kynlífsþrælkun, fólk er ánauðugt í vinnu, menn eru fluttir til Íslands gagngert til að brjóta af sér, fórnarlömbum og hugsanlegum vitnum er hótað og grófu ofbeldi er beitt.

    Lögreglan hefur staðið sig vel í baráttunni við skipulögð glæpasamtök, sem teygja anga sína hingað. Í mansalsmálinu, þar sem dómur var felldur í síðustu viku, beittu lögregluyfirvöld nýjum aðferðum. Nauðsynlegt þótti að tryggja vitnum og fórnarlömbum sérstaka vernd. Unnið var hættumat á vegum greiningardeildar Ríkislögreglustjóra, sem löngu hefur sannað gildi sitt. Gott samstarf var við lögregluyfirvöld í Litháen og víðar, sem stuðlaði að því að upplýsa málið og að mansalsmennirnir fengju sinn dóm.

    Lögreglan þarf hins vegar ríkari heimildir til að taka á skipulagðri glæpastarfsemi. Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra nefndi í Fréttablaðinu tvennt. Annars vegar eru svokallaðar forvirkar rannsóknarheimildir, sem heimila að hafin sé rannsókn og jafnvel fylgzt með tilteknum einstaklingum án þess að þeir séu grunaðir um tiltekið afbrot. Lögregluyfirvöld í langflestum nágrannalöndum okkar hafa þessar heimildir, en þær eru þar háðar ströngu eftirliti bæði dómsvaldsins og löggjafarvaldsins. Hins vegar vill ráðherra láta kanna hvort hægt sé að beita ákvæði stjórnarskrárinnar um að leysa megi upp félög með ólögmætan tilgang gegn samtökum á borð við Vítisengla.

    Ragna segir að lögregluyfirvöld séu vel meðvituð um að berjast þurfi gegn skipulögðum glæpasamtökum. „En það þarf að fræða bæði stjórnmálamenn og almenning betur um það sem er að gerast því að fæstir verða sem betur fer varir við þessa hluti í sínu daglega lífi. Dómsmálaráðuneytið og lögreglan geta ekki verið ein í þessari baráttu,” segir dómsmálaráðherrann.

    Full ástæða er til að samráðherrar Rögnu Árnadóttur í ríkisstjórninni hlusti á þessi orð og taki þau til sín. Það eru nefnilega helzt núverandi stjórnarflokkar sem á undanförnum árum hafa beitt sér gegn því að lögreglan fái í hendur þau tæki, sem hún þarf til að geta tekið á andstyggilegum glæpamönnum á borð við þá, sem héldu litháísku stúlkunni í kynlífsþrældómi.

    Þegar rætt var um auknar heimildir lögreglu og stofnun greiningardeildar Ríkislögreglustjóra á Alþingi fyrir nokkrum árum voru Össur Skarphéðinsson og Ögmundur Jónasson þannig í hópi þeirra þingmanna, sem harðast mæltu gegn slíkum breytingum og töluðu um „leyniþjónustu” og „njósnastarfsemi”.

    Vonandi hafa menn síðan séð hverju stofnun greiningardeildarinnar hefur skilað, til dæmis í mansalsmálinu. Og vonandi nær dómsmálaráðherrann nú árangri í uppfræðslu félaga sinna í stjórnarliðinu, þannig að þeir opni augun gagnvart þeim vanda, sem við er að etja og vinni með dómsmálaráðuneytinu og lögreglunni að því að bregðast rétt við.

  4. magusNo Gravatar #
    4

    Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra nefndi í Fréttablaðinu tvennt. Annars vegar eru svokallaðar forvirkar rannsóknarheimildir, sem heimila að hafin sé rannsókn og jafnvel fylgzt með tilteknum einstaklingum án þess að þeir séu grunaðir um tiltekið afbrot.

    Draumurinn lifir enn!

  5. SkorrdalNo Gravatar #
    5

    Áttir þú von á öðru, Magus? Og hvað ætlar þú að gera í að standa gegn þessari vitleysu?

  6. magusNo Gravatar #
    6

    Eg atti ekki von a thessu nuna…var svo sem buinn ad gefa upp vonina med radherrann goda….en vodalega er thetta lid desperat.
    bjost ekki vid thessari umraedu a medan VG er i stjorn..jafnvel thott VG hafi nu stadid sig einstaklega illa undanfarid…..

    Nu er svo sem ekkert vist ad VG hlusti a thetta vael…en annad eins hefur nu gerst, og Samfo mundi samthykkja hvada Stazi lagasetningu sem er fyrir mida ad ESB.

    Fyndid samt ad sja hve mikill Snati Olafur ritstjori er…voff voff
    Kannski ad thad endi med thvi ad David endi lika sem ritstjori a Frettabladinu…i tilraun til ad endurreisa bladid eftir tima Olafs

    hvad aetla eg ad gera? Thad er god spurning…. Thad eina sem eg hef gert hingad til er ad benda folki a thessa grein og athuga vidbrogdin…En thad er fullt af folki sem er farid ad sja i gegnum svona rugl.

    Svo er bara ad fylgjast med umraedunni…verdur thetta selt med hraedslu vid stripp-stadi og mansal, eda tharf eitthvad meira til?

    en eins og alltaf tha a folk skilid tha stjornmalamenn sem thad kys???

    svo er bara spurningin hve langt stjornvaldid gengur til ad fa fram svona lagasetningar…..

    hollywood false flag…

    bid einnig eftir umraedu um netid..

  7. SkorrdalNo Gravatar #
    7

    Ég er hættur að reyna, Magus. Fólk sem vill láta mata sig á lygum, blekkingum og áróðri, verður bara að lifa við það samfélag sem það kærir sig ekki um að taka þátt í.

    Eins og þú sérð – hef ég lítið skrifað frá hruni; mér finnst ég hafa sagt allt sem ég hef þurft að segja – og nú horfi ég bara á afleiðingarnar af afskiptaleysi almennings hvolfast yfir samfélagið.

    Ég barðist gegn þessum “forvirku rannsóknarheimildum” 2005, þegar Björn Bjarnason var dómsmálaráðherra – og þá neitaði Alsherjarnefnd honum að koma þeim á. Við skulum vona að svo verði núna – en ég efast það samt.

  8. magusNo Gravatar #
    8

    thad felst sem sje engin hamingja i thvi ad hafa haft rett fyrir ser??

    Thad vissi enginn af thessu mali 2005…en thad er amk meiri von um umraedu nuna..

    en stada stjornarinnar er ekki beinlinis sterk.

    Thad verdur sjalfsagt meira propaganda i fjolmidlum..

    Olafur ritstjori td hefur ekki gleymt thvi hvernig skal gelta..voff voff

    dapurt.

    Annad – hefurdu kikt a netmidilinn Kryppuna? Thad vaeri gaman ad sja greinar eftir thig thar..

  9. SkorrdalNo Gravatar #
    9

    Það er stundum sárt að hafa rétt fyrir sér.

    Jamms; ég les Kreppuna reglulega, en veit samt ekki hvort ég hafi blek í pennanum til að skrifa eitthvað af viti þessa dagana…



Þín athugasemd



Switch to our mobile site