Lögregla ráðamanna – Endurbirt
Með hverju árinu verður mér það ljósara að lögreglan er ekki fyrir okkur borgarana, heldur sem viljalaus verkfæri stjórnmálamanna, sem fara með réttindi okkar sem þeirra leikfang, líkt og þeir væri eigendur lýðræðisins. Þegar í raun þeir eru þjófar þess og níðingar. Enn og aftur sýnir lögreglan á sér sína réttu hlið, með ofbeldi og ósóma eins og þeim einum er lagið. Hingað til hefur mér ekki verið trúað, þegar ég hef reynt að fjalla um slík mál, og þau yfirleitt afskrifuð sem bull og þvættingur dópista; lygar til að reyna að fegra sína eigin sögu. Einnig hefur verið reynt að sverta mannorð mótmælenda, og jaðrar sú aðför stundum að landráði, þegar fjölmiðlungar leifa sér að apa upp vitleysuna í lögreglunni og trúa þeirra skýringum án nokkurrar gagnrýni; fjölmiðlungar sem þykjast eiga að vera okkar verndarar – hið fjórða vald lýðræðisins.
Nú er komin að þeim tímapunkti að fólk þarf að rísa upp og mótmæla slíkum aðferðum sem lögreglan er hér að beita, burt séð frá þeirra skoðunum um þá einstaklinga sem fá slíka útreið. Stöndum vörð gegn kúgun, í hvaða mynd sem hún birtist, ellegar erum við í engu betri en þær þjóðir sem við gagnrýnum og þykjumst vera framar hvað varðar tjáningar- og einstaklingsfrelsi. Eða viljum við hafa lögreglu sem notar aðferðir ógnunar og ofbeldis til að ná sínu fram, eða lögreglu sem getur talað niður æsta menn, í stað þess að skjóta þá með 50.000 volta straumi með vopni sem auðveldlega getur drepið? Viljum við lögreglu sem ógnar unga fólkinu okkar, hræðir það og kúgar, í þeim tilgangi að hræða það af þeirri braut sem þessir einstaklingar eru á, eða lögreglu sem er treystandi til að vernda unga fólkið okkar, leiðbeina því og kenna?
Lögreglan er hættuleg samfélaginu okkar, eins og hún hefur verið rekin undanfarin ár, og þar set ég sökina á Björn Bjarnason[i] dómsmálaráðherra, sem hefur heimilað beitingu meira ofbeldis en áður hefur þekkst, og er í raun að skapa sama vandamál og er fyrir vestan haf, í hálfklikkaða bíómyndalandinu. Viljum við fara í þá átt með lögregluna okkar, þar sem ofbeldi og ógnanir eru daglegt brauð og lögregluofbeldi staðreynd sem ekki verður litið framhjá? Eða viljum við fara eitthvað annað, læra af öðrum þjóðum en Svíþjóð og BNA þegar kemur að vímuefnamálmum? Ekki hafa ráðamenn þessara þjóða alltaf komið með bestu lausnirnar á málunum, eða er það?
Ríkissaksóknari er einnig hluti af vandanum, þar sem hann stöðvar flest þau mál er kærð eru vegna lögregluofbeldis og þar með er þeim er slíkar aðferðir nota gefið hálf-grænt ljós á að þær séu í lagi. Nú, ef grundvöllur er fyrir kæru, kemur oftar en ekki mótákæra, jafnvel upplogin, eflaust í þeirri von að hinni raunverulegu kæru verði dregin til baka. Um 4% af þeim málum sem kærð eru á hendur lögreglunni fá meðferð fyrir dómstólum þessa lands. Segir það meira til um vernd Ríkissaksóknara – eða er fólk bara svona rosalega lygið?
Blöðin eiga sinn hluta af vandanum, þar sem þau lepja upp ritskoðað efni lögreglunnar, jafnvel afrita orðrétt af vef hennar fréttir, sem síðan birtast á miðlum landsmanna. Gagnrýni er lítil sem engin, enda þora blaðamenn ekki að gagnrýna lögreglu á nokkurn hátt, eins og ég hef marg oft komið á framfæri. Þannig kemst lögreglan upp með mannsmorð, án þess að blöð fylgi neinu eftir, reyni að rannsaka nokkuð, heldur hjálpast að við að þagga niður mikilvæg mál.
Og þannig er þetta, kæru landsmenn; við höfum fasíska ráðamenn, sem eitra sínum fasisma út í stjórnkerfið, og svo er komið að lögreglan er farin að haga sér opinberlega eins og hún sé alvaldur í þessu landi. Ég hef varað við þessu, nú er það staðreynd. Hvað ætlið þið að gera í málinu?
Sjá:
- Áhorfendur færðir með valdi úr réttarsal – engin reyksprengja (Svipan.is)
- Sannleikurinn um aðkomu lögreglu í Héraðsdómi Reykjavíkur 30. apríl 2010 (Svipan.is)
- Friðurinn rofinn af þeim sem síst skildi (Lára Hanna)
- Ofstæki lögreglu spillir réttarhöldum (Freedomfries)
Mynd Baldvins er fengin af vef Svipunnar – Birt með heimild myndasmiðs
Grein þessi birtist fyrst á Blog.is þann 15. júlí 2007
og síðan í safnritinu Lýðræði fjöldans 2008
Tilvísanir:- Viðbót 1. maí 2010 – Núverandi dómsmálaráðherra, Ragna Árnadóttir, fékk sitt uppeldi hjá Birni Bjarnasyni – og hefur sýnt það svo ekki verður um villst, að hún heldur hans merki vel á lofti [↩]
Tengdar færslur:
- Hverju laug ég? Myndband gefið út 19. janúar 2008...
- Ofbeldisfullir lýðræðisþjónar Það er ekkert nýtt að blaðamenn þessa lands fabúleri fréttir,...
- Skiljanlegt grótkast? Lögreglan hefur í mörg ár – áratugi? – nýðst á...
- Lögregluofbeldi – Myndir og myndband Læt myndirnar tala sínu máli:...
- Vér mótmælum! Frú Dómsmálaráðherra, Ragna Árnadóttir Ég mótmæli hér með HARÐLEGA aðgerðum...
- Lýðskurmari á atkvæðaveiðum Ég vil að hér verði sett á fót sannleiksnefnd sem...
- Byltingin og börnin Okkur er oft sagt, að “byltingin étur börnin sín”… Að...
- Lögreglan sýnir sitt rétta andlit Lögreglan er ekki lengur þjónar lýðræðisins, heldur kúgarar[i][ii] valdhafanna. Þarf...
- Fyrirspurn vegna fjármálaóreyðu Þar sem ég get ekki hætt, sendir ég eftirfarandi fyrirspurnir...
- Dagskránni er lokið – Góða nótt Ég get ekki annað en verið stoltur af þjóð minni...
- Ákall til alþýðu Blekkingar samfélagsins Hver trúir því að Stjórnvöld segi okkur allan...
- Húsið er okkar! ...
- Mellur og málæði Mikilvægasta þingmáli vetrarins – að sumra mati – var troðið...
- Nú skemmtir skrattinn sér Það er með ólíkindum að fylgjast með bloggsvæðum, fréttavefum og...
- Vegið að lýðræðinu – enn og aftur Í dag munu ráðherrar og þingmenn taka sér sumarfrí, næstu...
- “nú á ég hvergi heima” Þannig endar ein vinsælasta drykkjuvísa (að öðrum ólöstuðum), sem ég...


















Ég ætla ekki að sitja hjá! Þetta er með öllu ólíðandi lögreglan er á hálum ís og með sömu framkomu verður blóðug bylting viljum við það?
Eitthvað þarf að breytast fljótt, svo ekki verði átök. Það er engin spurning, Sigurður. Það er verið að ræna okkur lýðræðinu og sjálfstæðinu!