wordpress visitor counter

Núðlusúpa 1

Það er djúpt á réttlætinu á Íslandi, annað er ekki hægt að segja. Lögreglan fylgist með dómstólunum – fólk er ákært fyrir að standa á rétti sínum.

Reyndar virðist eitthvað vera að rofa til, miðað við fréttir vikunnar um ákærur, handtökur og gæsluvarðhaldsúrskurði – sem fengu harða gagnrýni úr ótrúlegustu áttum. Það er með ólíkindum að fylgjast með þessu öllu saman – og Sigurður Einarsson toppar svo allt saman, með því að neita að mæta til Sérstaks saksóknara. Svo ég nefni ekki viðtal við ákveðin ráðherra í upphafi viku.

Egill Helgason kallaði þetta “absúrd” – og það er það svo sannarlega. Leikritið er orðið svo rotið, súrt – absúrd – að sýrusögur á borð við Alís í Undralandi, Harry Potter og Biblíuna komast ekki með tærnar þar sem íslenskur raunveruleiki hefur hælana. Hvað þarf að gera til að breyta því, hef ég ekki hugmynd um. En eitt er víst – þjóðin þarf að þroskast smá; við öll erum ekki mjög vitur hjörð.

Það er búið að ræna lýðræðinu fyrir löngu, undan nösunum á okkur. Það er kominn tími til að taka það aftur til baka. Með valdi – ef það er eina lausnin sem eftir verður. Þangað til, að reyna að finna allar leiðir til að svo fari ekki og byggja upp nýtt lýðveldi á rústum þessa gamla og spillta. Við hljótum að geta amk. sannmælst um það sem þjóð – eða erum við kannski ekki tilbúin?

Engar tengdar færslur.

Um höfund

Skorrdal

Aðrar færslur eftirSkorrdal

Vefsíða höfundarhttp://skorrdal.is

13

05 2010

Þín athugasemd



Switch to our mobile site