Núðlusúpa 2
Þetta Kaupþingsmál virðist vera mjög stórt og viðamikið. Samt æpir það á mann, að ekki sé talað við einn kúlulánþega, tengdur fráfarandi varaformanni Sjálfstæðisflokksins. Er það málið, að sumir eru stíkk frí vegna þess hverjum þeim eru kvæntir?
Það þarf að riðja dómstólana, eins og Jónas talar um – en það má gera það líkt og ég las um daginn, með því að búa til þriðja dómsstigið, færa dómara Hæstaréttar þangað – og auglýsa síðan um störf dómara í Hæstarétti Íslands. Mér lýst vel á þá hugmynd; það er nauðsynlegt að dómstólar landsins séu hafnir yfir gagnrýni um frændhygli og klíkuskap við ráðningar dómara. Allt ferlið þarf að skoða – og verður það vonandi fyrsta hlutverk nýrrar landsstjórnar hins nýja lýðveldis.
“Margur verður af aurum api” – og nú höfum við hafið söfnun á auraöpum, sem hugsanlega verða til sýnis almenningi, líkt og apabúrið í Eden – og á Sædýrasafninu, eins fáránlegt og það hljómar. Sædýrasafnið var reyndar einnig með ljón, ef ég man rétt – en ég man ekki til þess að ljón éti fisk.
Um leið og við opnum þennan nýja dýragarð hins gamla lýðveldis, sem verið er að safna sýningardýrum í þessa dagana, væri spurning um að hafa smá girðingu fyrir lygamerði, monthana og almenn prumphænsn, bragðarefi og bjöllusauði. Snýkjudýrin munu verða í þykku glerbúri, svo þau sleppi ekki aftur út í náttúruna og leggist á samfélagið. Það mun reyndar reynast erfitt að safna í það búr, því hörðustu snýkjudýrin hafa sogið sig svo föst að spurning er um hvort þau náist frá með góðu.
Það er samt ágætt að þeir fái að éta – og smá aur – á meðan þeir sitja inni, blessaðir fjármálasnillingarnir. Og nú börgum við tvöfallt fyrir þá; ég skil ekki afhverju þeir kvarta – eða leigupennar þeirra öllu heldur. En gagnrýna má samt, að þessir aurar nægja ekki fyrir einum sígarettupakka á dag! Er það nema von að sígarettur séu gjaldmiðill fangelsa þegar svo er? Kannski þeir opni sígarettubanka þegar þeir afplánda dóma sína, fjármálasnillingarnir. Þeir gætu grætt á því að selja og kaupa, ráðast á verðgildi rettunnar og svo fella það hagkerfi innan fangelsins, sem hefur fengið að vera í friði í áratugi. Þá væri gaman að sjá hvort þyrfti nærri tvö ár til að ákveða hvort ætti að refsa þeim eða ekki.
Þeir sem þurfa að bíða í biðröð til að fá matarölmusur, vildu eflaust vera í þeirra sporum – að fá frítt fæði og dagpeninga. En það virðast fáir minnast á þeirra aðstæður, sem gagnrýna meðferð á þessari dýrahjörð; þeir hafa það betra en þúsundir samlanda þeirra – og þeir þurfa ekki að standa í röð til að fá gefins mat; hann er sendur til þeirra í klefann!
Engar tengdar færslur.















