wordpress visitor counter

Núðlusúpa 3

Sharp MZ-80k

Ég átti einu sinni tölvu. Það var fyrsta ástin mín í lífinu – en ég var líka tæplega 13 og hálfs. Gefið mér bremmsu…

Á þessum tímum internetleysis og þeirrar ástæðu að fáir áttu sínar eigin tölvur, þurfti ég að læra að forrita, svo þessi tölva gerði mér eitthvað gagn. Annars hefði hún bara staðið á borðinu og gert ekkert gagn.

Hún klikkaði aldrei, þessi tölva mín; fraus ekki – ofhitnaði ekki, né var með einhver leiðindi, eins og vírusa eða orma. Vissulega var þetta ekki flókið apparat, með kassettutæki til að geyma gögn og hugbúnað og heil 8kb af minni. Ég stækkaði hana reyndar upp í heil 32kb – og þótti það bara rosa fínt á þeim tíma. Setti kubbana sjálfur í, hvað þá meir. Fékk leiðbeiningar í búðinni sem ég keypti þessar 8 minniseiningar.

Sharp Prentari

Ef ég vildi nota ritvinnslu, varð ég að smíða forritið sjálfur; leikir, gagnagrunnar og klukkur, urðu mitt áhugamál. Skólinn sat á hakanum, því ég og félagi minn (sem einnig keypti sér slíka tölvu á sama tíma og ég), eyddum öllum okkar frítíma fyrir framan tölvuna, í því að smíða hugbúnað, finna lausnir og læra á þetta stórkostlega tæki. Við áttum meira að segja, síðar meir, bæði prentara og diskettudrif, sem þótti þvílíkur munaður.

Það er rúmur aldarfjórðungur síðan þetta var – og rosalega margt breyst síðan í þessum tölvuheimi. Vírusar, ormar og annar ófögnuður herjar á tölvunotendur. Ég kynntist mínum fyrsta vírus eftir að ég skipti frá Makka yfir í PC um 1991; Makkarnir höfðu aldrei haft það vandamál, þótt svo einn og einn slæddist inn – en þá var oftar en ekki auðvelt að losna við þá. Ég lét glepjast – og hef verið fastur síðan.

Windows gerir gagn!

Þegar ég var ungur og vitlaus, sá ég fram á þann tíma að tölvurnar þyrfti ekki að mata, til þess að vinna á þær, heldur væri hægt að smíða nokkurskonar alhliða hugbúnað, sem þú gætir svo tekið úr það sem þú vildir til að nota, án þess að þurfa að vera til þess mikill sérfræðingur. Tölvurnar sæju um að sinna þínum óskum, skila sinni vinnu og þú gætir notað þær eins auðveldlega og sjónvarp. Af – á; hækka – lækka; næsta stöð. Æj hvað ég var nú vitlaus.

Í dag þarf hver sá, sem notar tölvu, að vera sérfræðingur í öllum andskotanum, ef ekki á að fara illa. Allskonar væringjar sækja í að hengja sig við þína tengingu, jafnvel stela frá þér upplýsingum og nýta sér til fjárhagslegs ávinnings. Stýrikerfin verða flóknari – og þekkingin sem þarf til að halda þessu í lagi, er á við tveggja ára háskólanám. Hvenær fara tölvurnar að vinna fyrir okkur, en við ekki fyrir þær?

Windows 2.1

Ég hef notað Windows stýrikerfið í nærri tvo áratugi. Séð það vaxa og breytast; fara úr því að vera skel ofan á DOS, yfir í það að vera ásættanlegt netstýrikerfi, niður í að gefa út Vista – eitt mesta flopp tölvuheimsins frá upphafi. En aldrei hef ég orðið var við það hjá þeim Microsoft mönnum að þeir hafi haft nokkurn áhuga á því að vernda notendur sína á nokkurn máta. Eldveggurinn þeirra er brandari – bakdyr að stýrikerfunum svo margar, að þeir gætu alveg eins hafa haft þá hlið kerfisins bara opna upp á gátt.

Svo, þegar upp á skjáinn hjá mér birtist gluggi, sem sagði mér að það væri eitthvað óvenjulegt við eina skránna í stýrikerfismöppunni, brá mér heldur mikið, því ég hafði bara aldrei upplifað annað eins hjá þeim Microsoft mönnum – og hef ég þó ekki verið tölvulaus lengur en í 6 mánuði – samanlagt – þessi rúm 26 ár síðan ég varð ástfanginn í fyrsta sinn. Loksins gerði stýrikerfið eitthvað, sem það hefði átt að gera frá upphafi; það fann villu, sagði mér frá henni og spurði mig hvort ég vildi laga hana. Ef ég ætti kampavín, myndi ég skála.

Apple Macintosh SE

Þótt svo ég hafi eignast aðrar tölvur, þar á meðal Apple Macintosh SE 1988, hélt ég samt tryggð við þessa fyrstu tölvu mína. Hún sá um að vekja mig á morgnana, minna mig á afmælisdaga og hitt og þetta sem ég vildi láta minna mig á. Hún gekk í fleiri ár, án þess að hikksta – nema þegar rafmagnið fór.

Persónulega finnst mér, að tölvur séu of flóknar fyrir hinn almenna notanda. Það ætti að sérhæfa tölvurnar enn meira, það myndi gera þær ódýrari og notendavænni. Ein tölva væri fyrir myndbandaskoðun; önnur væri fyrir tónlistarhlustun, þriðja sæi um að þú gætir skoðað vefinn, sent póst og þvíumlíkt. Hugbúnaður uppfærir sig sjálfur, ef þú ert forrit, sem reynir að troða sér inn, þá gengur það ekki upp, því holurnar eru færri, smærri og erfiðari að troðast í gegn um.

Apple virðist vera að mjakast í þessa átt – sem er gott, því það gerir tölvu að því sem þær eiga að vera; hjálpartæki – ekki hausverkur. Í fyrsta sinn í nærri 20 ár, sá ég Windows gera eitthvað af viti:

Engar tengdar færslur.

Um höfund

Skorrdal

Aðrar færslur eftirSkorrdal

Vefsíða höfundarhttp://skorrdal.is

14

05 2010

Þín athugasemd



Switch to our mobile site