wordpress visitor counter

Skamm! Þórarinn Tyrfingsson

„Góður mælikvarði á hvert stefnir í þessum málum eru ót[í]mabær dauðsföll hjá áfengis- og vímuefnafíklum sem hafa verið á Vogi. Auðvitað deyja fleiri úr áfengis- og vímuefnafíkn[] ótímabært en þeir sem í gagnagrunninn eru skrá[ð]ir. Þessi skráning tekur þó til svo margra að hún segir okkur ákveðið og marktækt hvert stefnir.” (Þórarinn Tyrfingsson, leiðari SÁÁ blaði 2010, 1.tbl)

Fjárlagagerð fyrir næsta ár stendur sem hæst yfir sumarið, svo hægt verði að leggja fjárlög fyrir Alþingi fyrir áramót. Þetta er heilmikil vinna og mikilvæg, svo stjórnmálamenn viti í hvað þeir ætla að eyða aurunum okkar á næsta ári – og hversu mörg strá þau geta sett á bak asnanna, áður en þeir sligast undan.

Líkt og lóan boðar vorkomuna – boða fréttir frá SÁÁ um hinar ýmsu hörmungar í vímuefnamálum, törn hjá þeim einstaklingum sem vinna að fjárlagagerð Alþingis.

Merki SÁÁStundum hefur það verið lokanir á göngudeild, eða meðferðarstöðunum á Vík og Staðarfelli yfir sumartímann; stundum hafa það verið hryllingssögur um kannabisneyslu unglinga eða yfirstandandi e-pilluæði. Af mörgu er að taka – svo má endurvinna; íslendingar eru ekki gæddir góðu minni á hvað er sagt til að réttlæta hitt og þetta.

Ég er alls ekki að gera lítið úr þeim fréttum sem við lesum úr þessari grein Þórarins, síður en svo. Ofneysla vímuefna – og afleiðingar þeirrar ofneyslu – eru mér vel þekktar, svo öll dauðsföll vegna hennar eru sorgleg. En að misnota sér þær til að vekja samúð og til að fá aukin framlög – eða að minnsta kosti reyna sitt besta – er fyrir neðan virðingu SÁÁ og Þórarins Tyrfingssonar.

„Hafa verður í huga að þjónustuskerðing er ekki komin til framkvæmda sem nokkru nemur árið 2009 og að á árinu 2010 hafa verið boðaðar minni fjárveitingar til bráðamóttöku sjúkrahúsanna, sjúkraflutninga, löggæslunnar og sjúkrahússins Vogs. Þessi þjónustuskerðing bitnar vissulega á veikum vímuefnafíklum sem þurfa hvað mest á þessari þjónustu að halda. Það vekur því ugg, þótt allt of snemmt sé að segja hvernig árið 2010 mun endanlega koma út, að tölur um dauðsföll úr gagnagrunni Vogs fyrir fyrstu 4 mánuði ársins 2010 eru hærri en á vondu árunum eftir 2000.” (Þórarinn Tyrfingsson, leiðari SÁÁ blaði 2010, 1.tbl)

Eins og ég les út úr þessum texta, með þeim gleraugum sem ég hef sett upp þegar ég les fréttir frá SÁÁ og greinar frá Þórarni Tyrfingssyni, er þarna verið í raun að hóta fjárlaganefnd, heilbrigðisnefnd og Alþingi: Ef þið lækkið ríkisstyrkina til okkar (kallast þjónustukaup Ríkisins af einkafyrirtæki) þá mun fleira fólk deyja!

Þórarinn Tyrfingsson veit að það eru fleiri meðferðaraðilar en sjúkrahúsið Vogur og SÁÁ. En ekki hef ég séð hann nefna þau úrræði, þótt svo hann nefni t.d. lögregluna, sem ég hefði haldið að hafi lítið að gera með heilbrigðismál.

SÁÁ ÁlfurinnFlest þessara dauðsfalla hefði mátt koma í veg fyrir, en vegna þess hvaða áróðursherferð SÁÁ og Þórarinn Tyrfingsson hafa rekið gegnum áratugina, má ekki bakka, eða að lygarnar og blekkingarnar koma upp á yfirborðið og fólk hættir að treysta því sem frá þessum samtökum kemur. Það væri sorglegt, en óumflýjanlegt. Þórarinn hefur sjálfur enga trú á þessari stefnu, en verður að viðhalda henni:

„Við segjum okkur eigin þjóð stríð á hendur ef kljáumst við eiturlyfjavandann með offorsi,” segir Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir á Vogi. Of mikil áhersla sé lögð á að skilgreina vandann sem afbrota- og glæpamál.

„Of mikil áhersla er lögð á að meðhöndla fíkniefnavandann sem afbrota- og glæpamál,” segir Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir á Vogi. Hægt sé að vinna markvisst gegn vandanum með forvarnar- og meðferðarstarfi. (RÚV – Vefur)

Með breytingum á vímuefnamálum í þessu landi mætti koma í veg fyrir dauðsföll, spara peninga og jafnvel græða smá í Ríkiskassann í leiðinni. Þá væri mögulega hægt að eyða meira í að hjálpa langt leiddum fíklum; það myndi sannarlega bjarga lífi fólks – og við sæjum árangur á fyrsta ári!

Tengdar færslur:

  1. “nú á ég hvergi heima” Þannig endar ein vinsælasta drykkjuvísa (að öðrum ólöstuðum), sem ég...
  2. Opið bréf til Landlæknis vegna kannabisumræðunnar – Kvörtun vegna umfjöllunar SÁÁ Hr. Landlæknir Matthías Halldórsson Vegna fréttar á MBL.is af tölfræði...
  3. Byltingin og börnin Okkur er oft sagt, að “byltingin étur börnin sín”… Að...
  4. Valdarán! Þingrof – en samt ekki? Að rjúfa þing – þingrof. Orðið eitt hefur merkinguna í...
  5. Aftaka hefur orðið En enginn þorir að gagnrýna þetta athæfi vegna þess að...
  6. RUV.is – Kannabis KJAFTÆÐI! Marijúana boðið grunnskólanemendum Börn og unglingar á höfuðborgarsvæðinu nota í...
  7. About LEAP  The Summary Founded on March 16, 2002, LEAP is made...
  8. Fréttablaðið – Bls. 6 ...
  9. Vísir – Koffínmiklir orkudrykkir ekki ætlaðir börnum Nokkur umræða hefur orðið um svokallaða orkudrykki í ljósi þess...
  10. Ad hominem – In Memoriam Það er ekki oft sem ég slæ upp nafni mínu...
  11. Mellur og málæði Mikilvægasta þingmáli vetrarins – að sumra mati – var troðið...
  12. Gefið mál – Af Kannabis.Net Ég er gáttaður og undrandi – en umfram allt þakklátur....
  13. Lögleiðum kannabis og skattleggjum neysluna – Ný grúbba á Fésbók Ég hef stofnað nýja grúbbu á Fésbók, fyrir þá sem...
  14. Ég styð nýja stjórn… Með Jóhönnu í forsvari, Össur sem utanríkisráðherra og Atla Gíslason...
  15. Opið bréf til Alþingismanna Sendi ég ykkur þetta bréf, aðallega til að fylgja eftir...

Um höfund

Skorrdal

Aðrar færslur eftirSkorrdal

Vefsíða höfundarhttp://skorrdal.is

07

06 2010

1 Athugasemdir Bættu við þinni ↓

Neðsta er nýjasta athugasemdin

  1. tiaNo Gravatar #
    1

    Möguleiki þórarins til starfsins á vegum SAA eru Ríkisstyrkir…fé frá almenningi.
    Á sama tíma vitum við (almenningur sem er að borga) lítið eða ekkert hvort Þórarinn og hans fólk sé að ná tilætluðum árangri eða gera það besta fyrir peningana sem völ er á.
    Allar ´rannsóknir´sem hann birir eru ´doctoreraðar´af honum fyrir birtingu. Þegar það er kritiserað af fólki sem kann að gera rannsóknir. .er svarið alltaf.. að þetta sé sérlega erfiður sjúklingahópur sem vonlaust sé að fylgja eftir. Þetta er náttúrlega þvæla. Það er nóg að renna á Hlemm og það er fólkið í rannsókninni.
    Þórarinn er búin að koma ser vel fyrir. Hann hefur ráðið allt sitt skyldfólk til starfa.. og hefur þetta eins og hann vill. Hann kann á aþingismenn og ráðuneytisstjóra. En eftir stendur að eingin veit um árangur.



Þín athugasemd



Switch to our mobile site