wordpress visitor counter

Gagnasafn ‘Lögreglan’Gagnasafn

Lögregla ráðamanna – Endurbirt

Með hverju árinu verður mér það ljósara að lögreglan er ekki fyrir okkur borgarana, heldur sem viljalaus verkfæri stjórnmálamanna, sem fara með réttindi okkar sem þeirra leikfang, líkt og þeir væri eigendur lýðræðisins. Þegar í raun þeir eru þjófar þess og níðingar. Enn og aftur sýnir lögreglan á sér sína réttu hlið, með ofbeldi og ósóma eins og þeim einum er lagið. Hingað til hefur mér ekki verið trúað, þegar ég hef reynt að fjalla um slík mál, og þau yfirleitt afskrifuð sem bull og þvættingur dópista; lygar til að reyna að fegra sína eigin sögu. Einnig hefur verið reynt að sverta mannorð mótmælenda, og jaðrar sú aðför stundum að landráði, þegar fjölmiðlungar leifa sér að apa upp vitleysuna í lögreglunni og trúa þeirra skýringum án nokkurrar gagnrýni; fjölmiðlungar sem þykjast eiga að vera okkar verndarar – hið fjórða vald lýðræðisins.

Lesa restina af þessari færslu →

01

05 2010

Hjákátleg hundalógík

Pappalögga í Baunalandi

Margir halda að ég hati lögguna – ég geri það ekki; ég hata bara heimskar fasistalöggur, sem halda að þeir séu í þessu starfi til að kúga almenning og viðhalda þeirri kúgun, sem stjórnmálamenn troða ofan í kok á okkur. Svoleiðis pappalöggur eru ekki einu sinni skeinipappír í mínum huga, heldur jafn ómerkilegar og hverskonar nýðingar í okkar samfélagi. Og þær löggur – og þær eru til, skal ég segja ykkur – sem nýðast á unglingum í krafti valds síns, eru hinir verstu barnanýðingar í mínum huga. Svo ætlast þessir dindlar að þeim sé sýnd virðing! Þeir sem misbeita valdi sínu á ungu fólki, eins og ég hef orðið vitni að, ættu að fá að upplifa eigin viðbjóð – eða kannski bara fjölskyldur þeirra? Kannski þeir áttuðu sig þá á því, hvað nauðgun þeirra er að gera fyrir unga fólkið okkar og framtíð þeirra.

Lesa restina af þessari færslu →

22

12 2009

“nú á ég hvergi heima”

Þannig endar ein vinsælasta drykkjuvísa (að öðrum ólöstuðum), sem ég hef margoft sungið tvíraddað í góðum félagsskap – hér á árum áður. Vissulega sorglegt kvæði, en segir í raun margt um hvernig mér er innanbrjóst þessa síðustu mánuði – og ár. Það er sárt til þess að vita, að ég “á hvergi heima” um þessar mundir – og hefur liðið þannig í mörg ár, þar sem ég hef verið landflótta að mestu vegna skoðanna minna.

Kveðið á sandi
Kristján Jónsson
Yfir kaldan eyðisand
einn um nótt ég sveima
Nú er horfið norðurland
nú á ég hvergi heima

Kveðið á sandi
Kristján Jónsson

Yfir kaldan eyðisand
einn um nótt ég sveima
Nú er horfið norðurland
nú á ég hvergi heima

Lesa restina af þessari færslu →

Hver er að ljúga að hverjum?

Rakst á eftirfarandi – og þótti ansi áhugavert, sérstaklega í ljósi þess trausts sem fólk sýnir amk. tveimur af þessum stofnunum lýðveldisins. Þið dæmið – ég spyr svo spurninga hér í lokin.

Frétt #1 – RÚV:

Smellið til að stækka
Smellið til að stækka

Frétt #2 - Vísir.is:

Smellið til að stækka
Smellið til að stækka

Frétt #3 - DV.is:

Smellið til að stækka
Smellið til að stækka

Og svo…

Frétt #4 - Vísir.is:

Smellið til að stækka
Smellið til að stækka

Svo kemur mitt tuð…

Bara svo það sé á hreinu, þá líkar mér ekki svona aðferðir við að koma málstæð á framfæri. Fordæmi ég því þessa sýruárás, þótt svo ég styðji hina listrænu útrás, sem einhverjir eru að fá á sumum húsum borgarinnar. Það er tvennt ólíkt, dauðir eða lifandi hlutir.

EN – ég hef þessar spurningar:

  1. Hverjir eru heimildarmenn RÚV, DV og Vísi.is? Hvaða tilgang hafa þeir heimildarmenn að ljúga þessu að blaðamönnunum? Og hversu traustir teljast þeir núna – eða skiptir það kannski ekki svo miklu máli?
  2. Hvernig er hægt að “greina efnið“, þegar ekki var tekið sýni af því (sjá Frétt #4)
  3. Hver hefur hag af því að koma slíkum staðreyndavillum á framfæri – og í hvaða tilgangi?
    1. Blaðamennirnir?
    2. Útrásavíkingarnir?
    3. Útgefendurnir?
    4. Tryggingafélögin?
    5. Lögreglan?
  4. Hverju er um að kenna?
    1. Lélegum vinnubrögðum?
    2. Vísvitandi áróðri blaðamanna?
    3. Afritunarþjónustu blaðamanna af vef lögreglunnar?
    4. Skorti á sjálfstæðri hugsun?
    5. Vísvitandi áróðri Lögreglunnar?
    6. Vísvitandi lygum heimildarmanns?
  5. Hvernig er hægt að fullyrða að um “ætandi lakkeyði” sé að ræða, þegar
  6. Ekki er vitað með vissu hvaða efni var sett á bílinn”?
    1. Hvernig er þá hægt að fullyrða um að efnið “þótti of hættulegt” og
    2. [á] notkun þess eru takmarkanir samkvæmt Evrópusambandinu?
  7. Hvernig er hægt að hafa leynd á því efni sem notað var til fjölmiðlamanna, sem ekki var tekið sýni af – og þar af leiðandi ekki vitað hvaða efni var notað?

Mér finnst eitthvað gruggugt við þetta mál allt saman…

Nei. » Lögregla fordæmir eigin aðferðir

»Það sem virðist yfirhylming lögreglu og dagblaðið kallar einfaldlega áróður [police propaganda], ásamt aðförunum sjálfum og fleiri uppákomum við mótmælin, varð tilefni til opinberrar rannsóknar á aðferðum lögreglu við mótmælasamkomur. Niðurstaða rannsóknarinnar var birt í 60 bls. skýrslu í júlí þar sem segir að lögregla þurfi að breyta aðferðum sínum verulega. Með óhóflegri valdbeitingu eins og við G20 mótmælin, gangi lögreglan á skjön við mannréttindakröfur. Undir skýrsluna skrifar Denis O’Connor, yfirlögregluþjónn.«

via Nei. » Lögregla fordæmir eigin aðferðir .

Ha? Lýgur löggan? Eða er með áróður? Því ættu þessir hrottar að vera öðruvísi á Íslandi? Þetta er allt ein sama helvítis “fjölskyldan”! Rétt eins og skíthælarnir í Frímúrarreglunni!

“Ber er hver að baki, nema sér bróður eigi!” Og þeir svo sannarlega þrífa skítinn af hvers annars baki! Helvítis tíkarsynirnir!

Þorri Almennings – thorrialmennings.blog.is – Lögruglubullur misþyrma konu

»Bloggplebbar reyna vafalust að snúa út úr þessu lögrguglu í hag þar sem lögruglan var fljót að senda út lygar til að hafvegaleiða til að láta heimskingjana hneykslast í sinni upphrópunarorðræðu. en nú beitir Lögruglan Jóni H. Baugsmáli  Snorrasyni. Svar hans einkennist af svo yfrrgegnilegum heimskuhroka að það  hálfa væri nóg. En kæru landar, viljið þið búa í svona ríki og lifa við svona ofbeldi yfirvalda?«

via Þorri Almennings – thorrialmennings.blog.is.

Hér tjáir sig enn einn nýr bloggvinur. Segir það sem segja þarf!

10

08 2009

Ásakanir Saving Iceland ekki svara verðar – mbl.is

Mynd: mbl.is/Heiddi

»„Þetta eru fráleitir frasar og ekki svaraverðir,“ segir Jón H. B. Snorrason, aðstoðaryfirlögregluþjónn og staðgengill lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins um ásakanir Saving Iceland um meint harðræði lögreglu gegn mótmælendum í gær.«

via Ásakanir Saving Iceland ekki svara verðar – mbl.is.

Auðvitað ekki! Þeir sem hafa nærri 80% stuðning þjóðarinnar, þurfa ekkert að svara fyrir sinn fasisma! Auðvitað ekki! Annað væri bara fásinna! Er það ekki?

08

08 2009

Vísir – Grýttu eggjum og börðu rúður á lögreglustöðinni

Mynd: mbl.is/Stefán

»Mótmælendurnir grýttu eggjum í lögregluna og börðu rúður við lögreglustöðina.«

via Vísir – Grýttu eggjum og börðu rúður á lögreglustöðinni.

Stórhættulegir glæpamenn, sem þarf að snúa niður, berja á með kylfum – og sýna hverjir hafa “valdið”!

08

08 2009

www.jonas.is – Ómar lét lögguna plata sig

»Ómar Ragnarsson lét plata sig. Kvartar um, að andófsfólk hafi sparkað í höfuð löggu. Ég tel, að sá atburður hafi ekki gerzt. Né, að andófsfólk hafi sótt járnstengur til að lemja löggur. Andófsfólk hefur lagt fram myndskeið og myndir máli sínu til stuðnings. Slíkt hefur löggan ekki gert. Hún hefur oft áður verið staðin að lygi um framgöngu í andófi. Sem betur fer gefa myndsímar andófsfólki tækifæri til að andmæla lygum hennar. Þess vegna segi ég við Ómar í fullri vinsemd: Varaðu þig á orðum löggunnar. Og varaðu þig á fjölmiðli, sem lepur lygar löggunnar. Ég er þar að tala um ríkissjónvarpið.«

via www.jonas.is.

Svo voru mörg þau orð!

08

08 2009

Lögregluofbeldi – Myndir og myndband

Læt myndirnar tala sínu máli:

Lögregluofbeldi - Iðnaðarráðuneytið - 070809

Lögregluofbeldi - Iðnaðarráðuneytið - 070809

Lögregluofbeldi - Iðnaðarráðuneytið - 070809 #3

Lögregluofbeldi - Iðnaðarráðuneytið - 070809 #4

Lögregluofbeldi - Iðnaðarráðuneytið - 070809 #5

Mynband ! Löggan að reyna að vernda sýna sérsveita hrotta ! – gretare.blog.is

»EN munum samt að fullt af eðlilegum Löggum ! EN HROTTARNIR ná að sverta störf Löggunnar og gera almenning fráhverfan enda ekki ásættanlegt með nokkru móti að hafa OFBELDISMENN í röðum Lögreglunnar ! þess þá heldur að steranotkunn sé “leyfð” þótt vissulega sé mjög ervitt að finna þá fyrr en jafnvel mörgum árum síðar (séu blóðsýni geymd) !«

via Mynband ! Löggan að reyna að vernda sýna sérsveita hrotta ! – gretare.blog.is.

Ha? Notar lögreglan ofbeldi? Nei, það getur ekki verið! Slíkt kemur aldrei í fréttunum!

08

08 2009


Switch to our mobile site