wordpress visitor counter

Stikkorða færslur ‘Dómsmálaráðherra’

Lögregla ráðamanna – Endurbirt

Með hverju árinu verður mér það ljósara að lögreglan er ekki fyrir okkur borgarana, heldur sem viljalaus verkfæri stjórnmálamanna, sem fara með réttindi okkar sem þeirra leikfang, líkt og þeir væri eigendur lýðræðisins. Þegar í raun þeir eru þjófar þess og níðingar. Enn og aftur sýnir lögreglan á sér sína réttu hlið, með ofbeldi og ósóma eins og þeim einum er lagið. Hingað til hefur mér ekki verið trúað, þegar ég hef reynt að fjalla um slík mál, og þau yfirleitt afskrifuð sem bull og þvættingur dópista; lygar til að reyna að fegra sína eigin sögu. Einnig hefur verið reynt að sverta mannorð mótmælenda, og jaðrar sú aðför stundum að landráði, þegar fjölmiðlungar leifa sér að apa upp vitleysuna í lögreglunni og trúa þeirra skýringum án nokkurrar gagnrýni; fjölmiðlungar sem þykjast eiga að vera okkar verndarar – hið fjórða vald lýðræðisins.

Lesa restina af þessari færslu →

01

05 2010

Lögregluofbeldi – Myndir og myndband

Læt myndirnar tala sínu máli:

Lögregluofbeldi - Iðnaðarráðuneytið - 070809

Lögregluofbeldi - Iðnaðarráðuneytið - 070809

Lögregluofbeldi - Iðnaðarráðuneytið - 070809 #3

Lögregluofbeldi - Iðnaðarráðuneytið - 070809 #4

Lögregluofbeldi - Iðnaðarráðuneytið - 070809 #5

Vér mótmælum!

Frú Dómsmálaráðherra,
Ragna Árnadóttir

Ég mótmæli hér með HARÐLEGA aðgerðum lögreglunnar við rýmingu húss við Vatnsstíg í Reykjavík í morgun og set alla ábyrgð á hörku lögreglunnar á þínar herðar, þar sem þú ert yfirmaður alls lögregluliðs í landinu um þessar mundir. Lít ég svo á, að þú ætlir að halda áfram verki kúgunnar og ógnarstjórnar forvera þíns og mun ekki á neinn hátt gefa þér neinn afslátt á gagnrýni héðan í frá. Annað hvort ert þú vanhæf sem dómsmálaráðherra, vegna vanþekkingar og reynsluleysis, eða vegna þess að þú vilt viðhalda þeirri ógnarstjórn sem forvera þínum var svo annt um. Allt fyrir auðvaldið – skítt með réttlætið! Ættir kannski að vera að eltast við ALVÖRU glæpamenn þessa lands, sem hafa komði þessari þjóð á heljarþröm, í stað þess að eltast bara við samloku- og tímaritaþjófa. Kannski málið sé þér bara ofvaxið?

Fordæmi ég hér með harðlega þessi vinnubrögð og andvaraleysi þitt í að takast á við slík vinnubrögð eins og þau sem þjóðin hefur fengið að upplifa nú í dag.

Ólafur Skorrdal
skáld

Aftaka hefur orðið

En enginn þorir að gagnrýna þetta athæfi vegna þess að það heitir ,,eiturlyfjaleit” og er þar af leiðandi réttlætt sem forvörn. Enginn þorir að standa í hárinu á yfirvöldum þegar þau framkvæma ,,framgang réttvísinnar”[i].

Jú – ég. En hver er ég? Bara “geðveikur dópisti”, með “ofsóknarbrjálæði” á hæsta stigi.

 

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

Tilvísanir:
  1. Voff Voff! Eiturlyfjahvolparnir eru komnir í skólana! – Aftaka.org []

Ég styð nýja stjórn…

Með Jóhönnu í forsvari, Össur sem utanríkisráðherra og Atla Gíslason sem dómsmálaráðherra, fram að næstu kosningum, ef hún stendur við það sem þetta fólk er að segja. Meira að segja skal ég styðja Ögmund sem heilbrigðisráðherra á sama tíma – en einungis að næstu kosningum, sem ég tel að ættu að fara fram í haust en ekki í vor. Kannski er von um raunhæfar breytingar á Stjórnarskrá og kosningalögum – við skulum sjá hvað þetta fólk gerir í raun.

Ef Lúðvík verður dómsmálaráðherra, mun hann ekki fá neinn frið frá mér; hann er sami skíturinn og fráfarandi fasisti og ekki treystandi til að vaða í vini sína – þessa peningasjúku.

Skiljanlegt grótkast?

Lögreglan hefur í mörg ár – áratugi? – nýðst á ungu fólki. Kannski þeir hefðu betur sýnt þeim meiri virðingu? Ég skil gremju unga fólksins mjög vel, þótt svo ég samþykki ekki aðferðir þeirra. En einhvern tíman hlaut að sjóða upp úr – nú virðist sá tími uppgjörs vera kominn.

22

01 2009

Hverju laug ég?

Myndband gefið út 19. janúar 2008

Rökrétt framhald ættarósómans

„Með afnámi lögbundinnnar þagnarskyldu lögmanna væri ekki aðeins very ðað gera þeim nánast ókleift að sinna starfi sínu, sem þeir hafa unnið sérstakan eið að um að sinna af bestu trúmennsku og samvisku, heldur er lögmönnum samkvæmt frumvarpinu, beinlínis gert, að viðlagðri fangelsisrefsingu í allt að 2 ár, að brjóta mannréttindi á skjólstæðingum sínum með því að skýra frá upplýsingum sem lögmenn kunna að búa yfir starfa sinna vegna,” segir í tilkynningunni.

af Vísir – Gera athugasemd við að afnema eigi þagnarskyldu.

Bjarni Benediktsson er búinn að losa sig út úr stjórnarformennskunni í olíufélaginu N1.

Þess er víst ekki langt að bíða að hann verði ráðherra. Það gæti jafnvel orðið um áramót.

Dómsmálaráðherra segja menn. Hann tekur þá við af frænda sínum Birni Bjarnasyni sem hverfur úr ríkisstjórn.

af Silfur Egils » Ráðherraskipti.

Bjarni Ben, Björn Bjarna – og Bjarni Benediktsson. Njósnir, réttarbrot, lögbrot, leynimakk, lygar, blekkingar. Bjarni Benediktsson verður engu skárri en hinir mafíósarnir sem á undan honum komu – hann er bara rökrétt framhald, næsta kynslóð alríkisþenkjandi fjölskyldustjórnmálamanna. Björn ætlar sér að vera farinn þegar allt sýður upp úr, svo hann verði ekki hálshöggvin. Svo vel er hann liðinn, að rétt um 10% treysta honum – 70% vanteysta honum. Þá er best að vera kominn í burtu, líkt og aumingjaleg rotta sem flýr sökkvandi skip.

Samt hugsa ég að hann hvísli af og til í eyra frænda síns, leiðbeini honum hvernig ganga eigi nærri réttarríkinu, nauðga mannréttindum og traðka á almúganum – allavega til að byrja með.

Farðu Björn, þótt fyrr hefði verið – það mun taka langan tíma að bæta þann skaða sem þú hefur valdið samfélaginu. Þín mun ætíð minnst sem sá ráðherra sem lagði af réttarríkið og komst á lögregluríki. Farið hefur fé betra.

Bjarni Benediktsson: Ef þetta er raunin, mun ég fylgjast alveg jafn vel með þér og frænda þinum. Ég treysti þér ekki fyrir fimm aura; blóðbönd þín vekja hjá mér miklar áhyggjur. Ofsóknarbrjálæði er hluti af uppeldi og erfðum – þú færð engan frið frá mér, til að grafa frekar undan mannréttindum og réttarríkinu en frændi þinn gerði á undan þér. Vona að þér verði haldið sem lengst frá þessum embætti, en óttast samt að svo verði ekki. Komið á Bildeberg fund?

12

12 2008

Vegið að lýðræðinu – enn og aftur

Í dag munu ráðherrar og þingmenn taka sér sumarfrí, næstu 6 mánuðina eða svo. Ekki halda eina mínútu að þeir verði í vinnunni, ekkert frekar en Steingrímur J., sem ég hitti á förnum vegi í september 2006, eftir að hafa reynt að fá við hann viðtal; “Ég er eiginlega ekkert niður á þingi,” tjáði hann mér – loksins einhver hreinskilni. Samt lofaði hann að hitta mig – en ég hef ekkert heyrt frá honum síðan. Gott að vera þingmaður, svo mikið er víst.

Lesa restina af þessari færslu →

29

05 2008

Æ, æ – ó, ó – aumingja ég!

Mikið áttu bágt, Björn Bjarnason, þegar þú getur ekki einu sinni varið þig sjálfur. “Aumingi og gunga,” hef ég áður sagt – og stend við hvern staf. Ættir að skammast þín, segja af þér og hætta afskiptum af pólitík; þinn tími er liðinn – þú átt ekkert heima í lýðræði, hvað þá heldur í dóms- eða kirkjumálum. Þú hefur fordóma gegn samfélaginu – þú ert í raun dragbítur á lýðræðið. Hættu þessu væli – komdu þér úr pólitík.

Að horfa á þessa kumpána troða sér í laugardagsfréttirnar til að skjóta á réttmæta gagnrýni, var ekkert skárra en að horfa á fordóma og fyrirlitningu Gunnars krossfara. Þessir menn, sem vilja ekki alvöru og sanngjarna rannsókn á ólögmætum hlerunum, sem ég las um að ekkert eftirlit væri með á Vísi.is í morgun, segir mér að þeir hafa eitthvað mikið að fela.

Það þarf að rannsaka þessi mál ofan í kjölinn, koma öllu upp á yfirborðið og fá sannleikann fram. En þeir óttast sannleikann sem hafa eitthvað að fela. Síðan segir formaðurinn, Geir H. Haarde, ekki vita um gagnrýni SUS-ara á Björn. Nú lýgur þú, minn kæri Geir! Skammastu þín! Nú er búið að fjarlægja ályktunina af forsíðu þeirra; kannski þess vegna sem Geir veit ekkert um hana?

21

10 2006

Málefnin í Alvörunni

Enn skýtur upp kollinum umræða um Málefnavefinn, sem þar til í vor hafði verið sá spjallvefur okkar Netverja sem flestir treystu og flestir sóttu hér á landi. Í vor varð trúnaðarbrestur milli rekanda þess vefjar og Netverja allra, sem að þeim tímapunkti höfðu getað tjáð sig frjálst – stundum um of – án þess að eiga á hættu að hver sem væri gæti komist að þeim persónuupplýsingum sem skráðar voru í gagnagrunn Málefnanna. Og allt varð vitlaust í mínu lífi.

Nú held ég að málið sé komið á annað stig, komið hættulega nærri persónuárásum á fólk sem hingað til hefur staðið vörð um rétt hvers og eins til að fá að tjá sig; staðið vörð um rétt til að vera undir þeirri dulu nafnleyndar sem vefurinn hefur boðið upp á. Og allt að ósekju og af vanþekkingu á málinu í heild. Þess vegna þarf ég að tjá mig um þetta mál, undir nafni, af hreinskilni, æðruleysi og í alvörunni.

Síðan 1997 hef ég unnið leynt og ljóst að því að verja hagsmuni Netverja, hvort sem þeim líkar betur eða verr. Persónulega hef ég fengið fyrir það bæði skammir og þakkir, en í nokkur ár hef ég unnið þessa vinnu mína utan sviðsljóssins en stundum er það hreinlega ekki hægt. Fólk hefur dæmt mig og mína persónu, oftast af vanþekkingu og með gríðarlegum fordómum, en ég gat látið það sem vind um eyru þjóta, þangað til Netverjar sjálfir snérust gegn því starfi sem ég hef staðið fyrir; einmitt að verja hagsmuni þeirra, rétt til að fá að tjá sig og rétt til að gera slíkt undir dulnefni. Nú virðist sem Netverjum sé alveg sama – ekki mér!

Málfrelsi er mér mikilvægt, en slíku frelsi fylgir mikil ábyrgð, sem ég tel að margir hafi ekki hugmynd um hver er. Hvort sem skrifað er undir nafni, sem ég hef ætíð gert frá því ég byrjaði að nota netið til skoðannaskipta, eða undir dulnefni er ábyrgðin alltaf til staðar. Má jafnvel færa rök fyrir því að málfrelsi undir dulnefni beri enn meiri ábyrgð en sú sem skrifuð er undir nafni, en hér ætla ég ekki að fara út í þá röksemdarfærslu. Hinsvegar er mér það ljóst að fólk gerir sér yfir höfuð ekki grein fyrir þeirri ábyrgð sem fylgir því að reka vef, eins og Málefnin eða Alvöruna, heldur að það geti bara úthúðað hverjum sem er án þess að það hafi áhrif. Svo er sannarlega ekki!

Vegna málfrelsis hef ég þurft að fórna miklu. Ég hef tapað atvinnu, húsnæði og nærri geðheilsu minni, bara vegna þess að ég trúði því innst inni að málfrelsi mitt væri varið Stjórnarskrá og í Mannréttindasáttmála Evrópu. En vegna þess málaflokks sem ég tjáði mig um, virðist sem yfirvöld geti notað orð mín til þess að gera mig að glæpamanni, fólk úthúðar mér í orði og riti, jafnvel hefur einstaklingur farið um framhaldsskóla þessa lands til þess að lýsa persónu minni með ógeðfeldum orðum og athöfnum, án þess að hann hafi nokkru sinni talað við mig, hvað þá meira. En sá einstaklingur hefur notað málfrelsi sitt til að ljúga um mína persónu; ég hef notað Sannleikann til að bera mín mál fram fyrir alþjóð.

Lygar og málfrelsi fara alls ekki saman; hafa aldrei gert og eiga ekki að gera. Samt eru lygar meira notaðar í dag, sumsstaðar mjög frjálslega, aðallega til að móta skoðanir fólks sem ekki kynna sér málefni af eigin rammleik heldur láta mata sig upplýsingum og hraðsoðnum skoðunum, sem það sjálft tekur upp og gasprar um, oftar en ekki af mikilli vanþekkingu og fullt fordóma. En fordómar fara oftar en ekki saman við fáfræði – og í þessu Málefnamáli er mikið um hvoru tveggja. Fólk tjáir sig um málefni sem það hefur ekki hundsvit á, jafnvel fullyrðir hluti sem alls ekki eiga stoð í raunveruleikanum, á meðan óprúttnir aðilar fara með persónuupplýsingar þessara sömu einstaklinga líkt og skiptimynt í viðskiptum undirheima fjármálamógúla. Menn eru fengnir til að hóta, ljúga og svíkja vini sína; fólk sem hefur treyst, varið og unnið með þeim aðilum í langan tíma. Nú er nóg komið!

Ef við einhvern er að sakast í þessu Málefnamáli er það téður Ásgeir Ásgeirsson, sem oftast er kenndur við Ljóshraða. Leppur dómsmálaráðherra, fenginn til að hóta vinum sínum, ljúga að fólki sem honum treystir og bera milli lygar og ósannleik í þeim tilgangi einum að blekkja, svíkja og stela. Og þannig fór með Málefnin.com í vor; fólk sem treysti einum aðila var illa svikið, brennt og sært mjög djúpt. Nú á að halda því áfram – og get ég ekki þagað yfir því!

Að nafngreina einstakling er mjög alvarlegt; að færast undan ábyrgð en enn alvarlegra í mínum huga. Hingað til hef ég haldið hlífiskyldi yfir þessum Ásgeiri, sem virðist leika tveimur skjöldum á öllum vígstöðum, án þess að þurfa að bera ábyrgð á neinu, heldur situr undir vernd dómsmálaráðherra og – að mínu mati – vinnur skítverk fyrir þann fasista og aumingja sem Björn Bjarnason er í raun og veru. Hefur þessi Ásgeir – óbeint – komið til skila hótunum ráðherra til mín, um að það þýði ekkert fyrir mig að vera á móti þeirri löggjöf sem nú mun koma til Þings um internetið; lög sem enn meira skerða rétt okkar Netverja um einkalíf og frelsi á Netinu. Eitthvað sem ég mun berjast gegn, þrátt fyrir að vera undir ólöglegu eftirlitið lögreglu – og hafa verið gert það ljóst að ég eigi ekki að láta þá andstöðu mína í ljós! Hvar er málfrelsið, ef ég má ekki nota það til að berjast gegn ofríki Stjórnvalda og ráðherra?

Þau hjú sem reka vefinn, Alvaran.com, eru hið ljúfasta fólk sem ég kynntist í vor gegnum þennan sama Ásgeir, sem ég hafði kynnst áður á vettvangi Netverja sjálfra. Keli og Agný eru yndisleg, bæði tvö, fólk sem ég treysti fullkomlega fyrir mínum upplýsingum; fólk sem vill standa vörð um rétt okkar á Netinu, en ekki þeir einstaklingar sem óprúttnir náungar hafa lýst þeim hér á vefnum. Að ráðast á persónur þeirra er gróft og siðlaust, því oftar en ekki er það gert af vanþekkingu og er mjög óvægið. Hafa þessar árásir gengið svo nærri þeim að þau hafa átt erfiða tíma, ekkert ósvipað og Stefán (eigandi Málefnanna) átti sjálfur í vor, þegar hann bað um minn stuðning (reyndar með lygum og hálfsannleik) en fékk uns ég komst að hinu sanna. Að ráðast á Kela og Agný er mjög ósanngjart, því þau bæði vilja okkur Netverjum aðeins gott, standa vörð um málfrelsið og meta tjáningarfrelsi okkar ofar öllu, en um leið gera sér grein fyrir þeirri ábyrgð sem því frelsi fylgir. Eitthvað sem stjórnendur Málefnanna ættu að taka sér til fyrirmyndar.

Einu lygarnar sem ég hef orðið var við í þessu máli, eru lygar Stefáns, Cecil, Ásgeirs og svo þeirra fjölmörgu sem hafa úthúðað minni persónu og persónu þeirra sem reka Alvaran.com. Hingað til hefur Sannleikurinn verið minn skjöldur, eitthvað sem fólk gerir sér ekki grein fyrir né trúir, en þannig bara vinn ég; ég þarf að muna of mikið ef ég lýg, svo best er að nota Sannleikann, þá þarf ég lítið að muna annað en staðreyndir! Og staðreyndin er sú að lygar voru notaðar til að blekkja Netverja, eru notaðar enn og munu verða notaðar þangað til Netverjar gera sér grein fyrir lygunum, hvenær sem það verður. Því miður.

Ólafur Skorrdal
skáld

Þessi grein er alfarið á minni ábyrgð en ekki þeirra sem hýsa þennan vef. Hefur enginn fengið mig til að skrifa þessa grein nema sannfæring mín og trú mín á málfrelsið; trú mín á Netið og rétt okkar til að vera laus við eftirlit Stjórnvalda, í hvaða formi sem þau nefnast. Sannleikurninn mun sigra að lokum!
ÓS

13

09 2006


Switch to our mobile site