wordpress visitor counter

Stikkorða færslur ‘Lögreglan’

Núðlusúpa 2

Þetta Kaupþingsmál virðist vera mjög stórt og viðamikið. Samt æpir það á mann, að ekki sé talað við einn kúlulánþega, tengdur fráfarandi varaformanni Sjálfstæðisflokksins. Er það málið, að sumir eru stíkk frí vegna þess hverjum þeim eru kvæntir?

Það þarf að riðja dómstólana, eins og Jónas talar um – en það má gera það líkt og ég las um daginn, með því að búa til þriðja dómsstigið, færa dómara Hæstaréttar þangað – og auglýsa síðan um störf dómara í Hæstarétti Íslands. Mér lýst vel á þá hugmynd; það er nauðsynlegt að dómstólar landsins séu hafnir yfir gagnrýni um frændhygli og klíkuskap við ráðningar dómara. Allt ferlið þarf að skoða – og verður það vonandi fyrsta hlutverk nýrrar landsstjórnar hins nýja lýðveldis.

Lesa restina af þessari færslu →

14

05 2010

Núðlusúpa 1

Það er djúpt á réttlætinu á Íslandi, annað er ekki hægt að segja. Lögreglan fylgist með dómstólunum – fólk er ákært fyrir að standa á rétti sínum.

Reyndar virðist eitthvað vera að rofa til, miðað við fréttir vikunnar um ákærur, handtökur og gæsluvarðhaldsúrskurði – sem fengu harða gagnrýni úr ótrúlegustu áttum. Það er með ólíkindum að fylgjast með þessu öllu saman – og Sigurður Einarsson toppar svo allt saman, með því að neita að mæta til Sérstaks saksóknara. Svo ég nefni ekki viðtal við ákveðin ráðherra í upphafi viku.

Lesa restina af þessari færslu →

13

05 2010

Hjákátleg hundalógík

Pappalögga í Baunalandi

Margir halda að ég hati lögguna – ég geri það ekki; ég hata bara heimskar fasistalöggur, sem halda að þeir séu í þessu starfi til að kúga almenning og viðhalda þeirri kúgun, sem stjórnmálamenn troða ofan í kok á okkur. Svoleiðis pappalöggur eru ekki einu sinni skeinipappír í mínum huga, heldur jafn ómerkilegar og hverskonar nýðingar í okkar samfélagi. Og þær löggur – og þær eru til, skal ég segja ykkur – sem nýðast á unglingum í krafti valds síns, eru hinir verstu barnanýðingar í mínum huga. Svo ætlast þessir dindlar að þeim sé sýnd virðing! Þeir sem misbeita valdi sínu á ungu fólki, eins og ég hef orðið vitni að, ættu að fá að upplifa eigin viðbjóð – eða kannski bara fjölskyldur þeirra? Kannski þeir áttuðu sig þá á því, hvað nauðgun þeirra er að gera fyrir unga fólkið okkar og framtíð þeirra.

Lesa restina af þessari færslu →

22

12 2009

“nú á ég hvergi heima”

Þannig endar ein vinsælasta drykkjuvísa (að öðrum ólöstuðum), sem ég hef margoft sungið tvíraddað í góðum félagsskap – hér á árum áður. Vissulega sorglegt kvæði, en segir í raun margt um hvernig mér er innanbrjóst þessa síðustu mánuði – og ár. Það er sárt til þess að vita, að ég “á hvergi heima” um þessar mundir – og hefur liðið þannig í mörg ár, þar sem ég hef verið landflótta að mestu vegna skoðanna minna.

Kveðið á sandi
Kristján Jónsson
Yfir kaldan eyðisand
einn um nótt ég sveima
Nú er horfið norðurland
nú á ég hvergi heima

Kveðið á sandi
Kristján Jónsson

Yfir kaldan eyðisand
einn um nótt ég sveima
Nú er horfið norðurland
nú á ég hvergi heima

Lesa restina af þessari færslu →

Hver er að ljúga að hverjum?

Rakst á eftirfarandi – og þótti ansi áhugavert, sérstaklega í ljósi þess trausts sem fólk sýnir amk. tveimur af þessum stofnunum lýðveldisins. Þið dæmið – ég spyr svo spurninga hér í lokin.

Frétt #1 – RÚV:

Smellið til að stækka
Smellið til að stækka

Frétt #2 - Vísir.is:

Smellið til að stækka
Smellið til að stækka

Frétt #3 - DV.is:

Smellið til að stækka
Smellið til að stækka

Og svo…

Frétt #4 - Vísir.is:

Smellið til að stækka
Smellið til að stækka

Svo kemur mitt tuð…

Bara svo það sé á hreinu, þá líkar mér ekki svona aðferðir við að koma málstæð á framfæri. Fordæmi ég því þessa sýruárás, þótt svo ég styðji hina listrænu útrás, sem einhverjir eru að fá á sumum húsum borgarinnar. Það er tvennt ólíkt, dauðir eða lifandi hlutir.

EN – ég hef þessar spurningar:

  1. Hverjir eru heimildarmenn RÚV, DV og Vísi.is? Hvaða tilgang hafa þeir heimildarmenn að ljúga þessu að blaðamönnunum? Og hversu traustir teljast þeir núna – eða skiptir það kannski ekki svo miklu máli?
  2. Hvernig er hægt að “greina efnið“, þegar ekki var tekið sýni af því (sjá Frétt #4)
  3. Hver hefur hag af því að koma slíkum staðreyndavillum á framfæri – og í hvaða tilgangi?
    1. Blaðamennirnir?
    2. Útrásavíkingarnir?
    3. Útgefendurnir?
    4. Tryggingafélögin?
    5. Lögreglan?
  4. Hverju er um að kenna?
    1. Lélegum vinnubrögðum?
    2. Vísvitandi áróðri blaðamanna?
    3. Afritunarþjónustu blaðamanna af vef lögreglunnar?
    4. Skorti á sjálfstæðri hugsun?
    5. Vísvitandi áróðri Lögreglunnar?
    6. Vísvitandi lygum heimildarmanns?
  5. Hvernig er hægt að fullyrða að um “ætandi lakkeyði” sé að ræða, þegar
  6. Ekki er vitað með vissu hvaða efni var sett á bílinn”?
    1. Hvernig er þá hægt að fullyrða um að efnið “þótti of hættulegt” og
    2. [á] notkun þess eru takmarkanir samkvæmt Evrópusambandinu?
  7. Hvernig er hægt að hafa leynd á því efni sem notað var til fjölmiðlamanna, sem ekki var tekið sýni af – og þar af leiðandi ekki vitað hvaða efni var notað?

Mér finnst eitthvað gruggugt við þetta mál allt saman…

Spilling: Glæpamannasamfélagið Ísland

Mig minnir að ég hafi reynt að segja þetta í mörg ár, en fólk vildi ekki vita það heldur hélt bara áfram að lifa í sínum draumaheimi, þar sem frelsi er þrældómur. Nú hefur Jónas reynt að segja fólki það í nokkurn tíma – kannski þau fari að segja okkur næst að stríð sé friður? Eða kannski hefur því verið logið að okkur um nokkuð langan tíma?

Og fyrst það á að skera niður menntakerfið, þá förum við eflaust að heyra möntruna um að fáfræði sé styrkur?

Vel tengdur glæpalýður

Erlendir ráðamenn efast um, að Ísland geri upp sakirnar við glæpalýðinn, sem rústaði fjárhag og áliti landsins. Gera ráð fyrir, að sannleiksnefndin fræga stundi kattarþvott. Taka eftir, að enginn glæpamaður hefur verið settur inn, ekki einu sinni yfirmenn IceSave og Landsbankans. Ísland er talið vera eins konar mafíuríki, þar sem vel tengdur glæpalýður sleppur billega frá ofur-syndum sínum. Samt er Sjálfstæðisflokkurinn ekki lengur formlega við völd. En hann ræður enn embættum og dómstólum og lögreglu og skilanefndum og sannleiksnefnd. Pólitíkin er máttvana, jafnvel þótt hér sé vinstri stjórn.

Jónas.is

War is Peace; Freedom is Slavery; Ignorance is Strength.

1984 / George Orwell

Lögregluofbeldi – Myndir og myndband

Læt myndirnar tala sínu máli:

Lögregluofbeldi - Iðnaðarráðuneytið - 070809

Lögregluofbeldi - Iðnaðarráðuneytið - 070809

Lögregluofbeldi - Iðnaðarráðuneytið - 070809 #3

Lögregluofbeldi - Iðnaðarráðuneytið - 070809 #4

Lögregluofbeldi - Iðnaðarráðuneytið - 070809 #5

Byltingin og börnin

Okkur er oft sagt, að “byltingin étur börnin sín”… Að vissu leiti má það vera rétt – en hið raunverulega gleymist oftast, þegar þessir frasi er notaður: Byltingin talar sjaldnast um börnin “sín”.

Hverjir eru það sem þjást mest í stríði og átökum, ef ekki börnin okkar? En er það næg ástæða til að aðhafast ekkert og láta kúgunina standa? Láta allt yfir sig ganga, til þess eins að vernda börnin okkar? Hver verður þá hin raunverulega framtíð þeirra, sem “land” okkar eiga að erfa? Er það sú “paradís” sem við viljum afkomendum okkar, hvar sem í flokki við erum? Það held ég ekki.

Svo eru til dæmi, þar sem “börnin okkar” eru misnotuð, í tilgangi, sem fáir njóta góðs af. Til dæmis “fíkniefnastríðið“, sem eytt hefur verið óhugnanlegu fé í, án nokkurs árangur – í raun aðeins til að “vernda börnin okkar“. En hver eru í raun fórnarlömb þessa “stríðs” Stjórnvalda gegn eigin þjóð? Eru það ekki einmitt “börnin” okkar; unga fólkið, sem getur ekki borið hönd yfir höfuð sér, vegna vanþekkingar sinnar á lögunum og réttindum sínum? “Stríð” sem flestir virðast samþykkja, en í raun er beint gegn réttarríkinu og lýðveldinu, í öllu sínu veldi?

Við viljum öll vernda börnin okkar, en stundum er okkur fengin vopn í hendur, sem frekar skaðar þeirra framtíð en verndar hana. Vopn, sem frekar berjast gegn frelsi þeirra og réttlæti – frelsi okkar allra – frekar en að byggja þau upp og gera að betri einstaklingum. Okkur er sagt ýmislegt, sem vekur ugg í brjósti okkar – sérstaklega þegar kemur að framtíð barna okkar. En sumt af því – því miður – er bara blekking, til þess eins að stýra hugarfari okkar í eina átt.

Það er hagur hverra stjórnvalda, að viðhalda lyginni og sjá til þess, að “þegnar” þeirra lifi í ótta, óvissu og ósætti. Aðeins þá, er hægt að stjórna því hvernig fólk hagar sér, upplifir “sannleikann” og lætur stjórnast af áróðri þeim, er frá Stjórnvöldum kemur. Þannig hefur því verið háttað frá alda öðli – og þannig er því háttað enn þann dag í dag. Meira að segja á Íslandi – hinu “óspillta”…

Íslensk stjórnvöld vilja ósætti og sundrung meðal okkar Borgaranna, því samstaða okkar gæti þýtt þeirra endalok; það má sjá á baráttunni gegn Stjórnarskrárbreytingum Sjálfstæðisflokksins – og ákvörðun núverandi Ríkisstjórnar um “ráðgefandi” Stjórnlagaþing og ESB kosningu. Þetta er allt saman samtrygging valdhafanna, þótt svo þeir kjósi að kalla sig “Samfylkingu”, “Sjálfstæðisflokk”, “Framsóknarflokk” eða “Vinstri-græna”; þetta er allt saman sama mafían, ef málin eru skoðuð djúpt ofan í kjölin.

Til þess að okkar bylting “éti” ekki börnin sín, þurfum við að læra að standa saman; læra að bera virðingu fyrir hvort öðru – og læra að bera virðingu fyri framtíð barna okkar og þeirra frelsi, hvort sem það er til orðs eða æðis. Við þurfum að læra að bera virðingu fyrir hvort öðru, skoðunum hvers annars, því annars munu “börn” okkar ekki læra að lifa í sátt og samlindi hvort við annað.

Öll viljum við að börn okkar hafi sama rétt til náms, heilbrigðis, lífernis og mannréttinda. Eða það vona ég svo sannarlega. Sum okkar hafa aðrar skoðanir á málunum, hverjum sé best treystandi til að framfylgja þeim réttindum. En ég held – ég vona – að við öll séum sammála að öll okkar börn eigi að lifa í áhyggjulausum heimi, þar sem þau þurfa ekki að eiga á hættu að þeirra ævistarfi sé stolið af þeim, heldur geta treyst því, að þeirra framlag til lífsins sé traust, hvaða skoðunum foreldrar þeirra aðhyllist. Þess vegna er það mín skoðun, að í raun viljum við öll það sama fyrir okkar börn, hvort sem við eigum þau eða ekki. Því þurfum við þá að rífast um hægri og vinstri? Því getum við ekki verið sammála um að færa börnum okkar þá bestu framtíð sem við mögulega getum – án þess að nokkur einstaklingur eða fyrirtæki geti rænt þau henni, án þess að VIÐ höfum nokkuð við því að segja?

Nú er tími til að leggja niður alla flokkadrætti í okkar samfélagi; þeir hafa sundrað okkur einum of lengi – og lagt samfélag okkar í rúst. Nú þurfum við, mínir kæru samlandar, að standa saman fyrir framtíð barna okkar – og ekki láta nein öfl í samfélaginu standa í vegi fyrir okkur. “Hægri” eða “vinstri” eru úrelt hugarfóstur lénsaflanna, sem hingað til hafa ráðið of miklu; framtíðarstefna er það sem ætti að ráða okkar hugsun.

Vissulega getur okkur greint á um, hvort Ríkið eigi að reka hitt eða þetta – en við hljótum að geta verið sammála um, að börnin okkar eigi þá bestu framtíð skilið, sem við getum boðið þeim. Hvaða skoðunum sem við aðhyllumst. Annað, mínir kæru samlandar, er bara hrein geðveiki.

Ef við getum ekki verið sammála um það, mun byltingin sannarlega éta börnin okkar – hvar sem við höldum að við stöndum í pólitíkinni. Og það væri vissulega hin versta gjöf, sem við gæfum börnum framtíðarinnar.

Stöndum saman! Byggjum betri framtíð!

Sjá einnig:

Nýja Kaupþing og skilanefnd Kaupþings telja…

Financial collapse: Confidential exposure analysis of 205 companies…

Icelandic bank Kaupthing threat to WikiLeaks over confidential large exposure report, 31 Jul 2009

Vér mótmælum!

Frú Dómsmálaráðherra,
Ragna Árnadóttir

Ég mótmæli hér með HARÐLEGA aðgerðum lögreglunnar við rýmingu húss við Vatnsstíg í Reykjavík í morgun og set alla ábyrgð á hörku lögreglunnar á þínar herðar, þar sem þú ert yfirmaður alls lögregluliðs í landinu um þessar mundir. Lít ég svo á, að þú ætlir að halda áfram verki kúgunnar og ógnarstjórnar forvera þíns og mun ekki á neinn hátt gefa þér neinn afslátt á gagnrýni héðan í frá. Annað hvort ert þú vanhæf sem dómsmálaráðherra, vegna vanþekkingar og reynsluleysis, eða vegna þess að þú vilt viðhalda þeirri ógnarstjórn sem forvera þínum var svo annt um. Allt fyrir auðvaldið – skítt með réttlætið! Ættir kannski að vera að eltast við ALVÖRU glæpamenn þessa lands, sem hafa komði þessari þjóð á heljarþröm, í stað þess að eltast bara við samloku- og tímaritaþjófa. Kannski málið sé þér bara ofvaxið?

Fordæmi ég hér með harðlega þessi vinnubrögð og andvaraleysi þitt í að takast á við slík vinnubrögð eins og þau sem þjóðin hefur fengið að upplifa nú í dag.

Ólafur Skorrdal
skáld

Lýðskurmari á atkvæðaveiðum

Ég vil að hér verði sett á fót sannleiksnefnd sem hefur það hlutverk að skoða þessi hlerunarmál bæði í fortíð og nútíð. Þetta hafa aðrar þjóðir gert og þær hafa reynt að læra af þessu.

Að mínu mati er þessi maður lítið annað en lýðskrumari, sem hefur talað fyrir netlögreglu og auknu eftirliti Ríkisins. Hann hefur ekki viljað hlusta á saðreyndir um magnaðri njósnir lögregluyfirvalda en hann getur nokkru sinni gert sér í hugarlund að hafi verið stunduð hér á landi síðustu áratugina – án heimilda dómstóla, með samþykki dómsmálaráðherra fyrrverandi, og hans forverum – að ég, eftir mín samkipti, eða samskiptaleysi, get ekki annað en flokkað þessi svör hans sem lýðskrum og kjaftæði.

Aftaka hefur orðið

En enginn þorir að gagnrýna þetta athæfi vegna þess að það heitir ,,eiturlyfjaleit” og er þar af leiðandi réttlætt sem forvörn. Enginn þorir að standa í hárinu á yfirvöldum þegar þau framkvæma ,,framgang réttvísinnar”[i].

Jú – ég. En hver er ég? Bara “geðveikur dópisti”, með “ofsóknarbrjálæði” á hæsta stigi.

 

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

Tilvísanir:
  1. Voff Voff! Eiturlyfjahvolparnir eru komnir í skólana! – Aftaka.org []


Switch to our mobile site