wordpress visitor counter

Stikkorða færslur ‘Lögregluofbeldi’

Lögregla ráðamanna – Endurbirt

Með hverju árinu verður mér það ljósara að lögreglan er ekki fyrir okkur borgarana, heldur sem viljalaus verkfæri stjórnmálamanna, sem fara með réttindi okkar sem þeirra leikfang, líkt og þeir væri eigendur lýðræðisins. Þegar í raun þeir eru þjófar þess og níðingar. Enn og aftur sýnir lögreglan á sér sína réttu hlið, með ofbeldi og ósóma eins og þeim einum er lagið. Hingað til hefur mér ekki verið trúað, þegar ég hef reynt að fjalla um slík mál, og þau yfirleitt afskrifuð sem bull og þvættingur dópista; lygar til að reyna að fegra sína eigin sögu. Einnig hefur verið reynt að sverta mannorð mótmælenda, og jaðrar sú aðför stundum að landráði, þegar fjölmiðlungar leifa sér að apa upp vitleysuna í lögreglunni og trúa þeirra skýringum án nokkurrar gagnrýni; fjölmiðlungar sem þykjast eiga að vera okkar verndarar – hið fjórða vald lýðræðisins.

Lesa restina af þessari færslu →

01

05 2010

Hjákátleg hundalógík

Pappalögga í Baunalandi

Margir halda að ég hati lögguna – ég geri það ekki; ég hata bara heimskar fasistalöggur, sem halda að þeir séu í þessu starfi til að kúga almenning og viðhalda þeirri kúgun, sem stjórnmálamenn troða ofan í kok á okkur. Svoleiðis pappalöggur eru ekki einu sinni skeinipappír í mínum huga, heldur jafn ómerkilegar og hverskonar nýðingar í okkar samfélagi. Og þær löggur – og þær eru til, skal ég segja ykkur – sem nýðast á unglingum í krafti valds síns, eru hinir verstu barnanýðingar í mínum huga. Svo ætlast þessir dindlar að þeim sé sýnd virðing! Þeir sem misbeita valdi sínu á ungu fólki, eins og ég hef orðið vitni að, ættu að fá að upplifa eigin viðbjóð – eða kannski bara fjölskyldur þeirra? Kannski þeir áttuðu sig þá á því, hvað nauðgun þeirra er að gera fyrir unga fólkið okkar og framtíð þeirra.

Lesa restina af þessari færslu →

22

12 2009

“nú á ég hvergi heima”

Þannig endar ein vinsælasta drykkjuvísa (að öðrum ólöstuðum), sem ég hef margoft sungið tvíraddað í góðum félagsskap – hér á árum áður. Vissulega sorglegt kvæði, en segir í raun margt um hvernig mér er innanbrjóst þessa síðustu mánuði – og ár. Það er sárt til þess að vita, að ég “á hvergi heima” um þessar mundir – og hefur liðið þannig í mörg ár, þar sem ég hef verið landflótta að mestu vegna skoðanna minna.

Kveðið á sandi
Kristján Jónsson
Yfir kaldan eyðisand
einn um nótt ég sveima
Nú er horfið norðurland
nú á ég hvergi heima

Kveðið á sandi
Kristján Jónsson

Yfir kaldan eyðisand
einn um nótt ég sveima
Nú er horfið norðurland
nú á ég hvergi heima

Lesa restina af þessari færslu →

Rasistahjal og kannabisgrein

Má í raun ekki segja að Hæstiréttur hafi dæmt Ómar sem rasista, rétt eins og hann viðurkenndi að fyrrum fangelsismálastjóri hafi verið “glæpamannaframleiðandi Íslands”, eins og Illugi sagði forðum?

Vísir – Gaukur mátti kalla Ómar rasista.

Annars rakst ég á frábæra færslu hjá bloggvini mínum Helga Hrafni, þar sem hann segir m.a.:

Að útrýma kannabisræktun er álíka raunhæft og að útrýma sjálfsfróun eða samkynhneigð, vegna þess hversu hryllilega einfalt er að framleiða þessi efni á stórum skala. Það eina sem þarf er orka, vatn, rými og fræ. Þar að auki er kannabisplantan strangt til tekið illgresi, þ.e. hún étur upp þau efni sem hún getur mögulega fengið, sem gerir það afskaplega erfitt að klúðra ræktuninni. Ofan á þetta er ekkert mál fyrir hvern sem er að finna leiðbeiningar á netinu jafnt á vídjóum sem og í riti, til útskýringa á því hvernig best sé að rækta.

Mæli sérstaklega með þessum lestri.

Rakst einnig á þessa færslu hans Helga Jóhanns, um lögregluofbeldi:

Það þurfti afar einbeittan ofbeldisvilja lögreglu til þessarar hegðunar að handtaka 6 manns af kannski 30 mótmælendum sem þá voru eftir. – Mér er virkilega ofboðin framkoma lögreglu.

Lesið hana alla hérna.



Switch to our mobile site