Stikkorða færslur ‘Málfrelsi’
Málefnin í Alvörunni
Enn skýtur upp kollinum umræða um Málefnavefinn, sem þar til í vor hafði verið sá spjallvefur okkar Netverja sem flestir treystu og flestir sóttu hér á landi. Í vor varð trúnaðarbrestur milli rekanda þess vefjar og Netverja allra, sem að þeim tímapunkti höfðu getað tjáð sig frjálst – stundum um of – án þess að eiga á hættu að hver sem væri gæti komist að þeim persónuupplýsingum sem skráðar voru í gagnagrunn Málefnanna. Og allt varð vitlaust í mínu lífi.
Nú held ég að málið sé komið á annað stig, komið hættulega nærri persónuárásum á fólk sem hingað til hefur staðið vörð um rétt hvers og eins til að fá að tjá sig; staðið vörð um rétt til að vera undir þeirri dulu nafnleyndar sem vefurinn hefur boðið upp á. Og allt að ósekju og af vanþekkingu á málinu í heild. Þess vegna þarf ég að tjá mig um þetta mál, undir nafni, af hreinskilni, æðruleysi og í alvörunni.
Síðan 1997 hef ég unnið leynt og ljóst að því að verja hagsmuni Netverja, hvort sem þeim líkar betur eða verr. Persónulega hef ég fengið fyrir það bæði skammir og þakkir, en í nokkur ár hef ég unnið þessa vinnu mína utan sviðsljóssins en stundum er það hreinlega ekki hægt. Fólk hefur dæmt mig og mína persónu, oftast af vanþekkingu og með gríðarlegum fordómum, en ég gat látið það sem vind um eyru þjóta, þangað til Netverjar sjálfir snérust gegn því starfi sem ég hef staðið fyrir; einmitt að verja hagsmuni þeirra, rétt til að fá að tjá sig og rétt til að gera slíkt undir dulnefni. Nú virðist sem Netverjum sé alveg sama – ekki mér!
Málfrelsi er mér mikilvægt, en slíku frelsi fylgir mikil ábyrgð, sem ég tel að margir hafi ekki hugmynd um hver er. Hvort sem skrifað er undir nafni, sem ég hef ætíð gert frá því ég byrjaði að nota netið til skoðannaskipta, eða undir dulnefni er ábyrgðin alltaf til staðar. Má jafnvel færa rök fyrir því að málfrelsi undir dulnefni beri enn meiri ábyrgð en sú sem skrifuð er undir nafni, en hér ætla ég ekki að fara út í þá röksemdarfærslu. Hinsvegar er mér það ljóst að fólk gerir sér yfir höfuð ekki grein fyrir þeirri ábyrgð sem fylgir því að reka vef, eins og Málefnin eða Alvöruna, heldur að það geti bara úthúðað hverjum sem er án þess að það hafi áhrif. Svo er sannarlega ekki!
Vegna málfrelsis hef ég þurft að fórna miklu. Ég hef tapað atvinnu, húsnæði og nærri geðheilsu minni, bara vegna þess að ég trúði því innst inni að málfrelsi mitt væri varið Stjórnarskrá og í Mannréttindasáttmála Evrópu. En vegna þess málaflokks sem ég tjáði mig um, virðist sem yfirvöld geti notað orð mín til þess að gera mig að glæpamanni, fólk úthúðar mér í orði og riti, jafnvel hefur einstaklingur farið um framhaldsskóla þessa lands til þess að lýsa persónu minni með ógeðfeldum orðum og athöfnum, án þess að hann hafi nokkru sinni talað við mig, hvað þá meira. En sá einstaklingur hefur notað málfrelsi sitt til að ljúga um mína persónu; ég hef notað Sannleikann til að bera mín mál fram fyrir alþjóð.
Lygar og málfrelsi fara alls ekki saman; hafa aldrei gert og eiga ekki að gera. Samt eru lygar meira notaðar í dag, sumsstaðar mjög frjálslega, aðallega til að móta skoðanir fólks sem ekki kynna sér málefni af eigin rammleik heldur láta mata sig upplýsingum og hraðsoðnum skoðunum, sem það sjálft tekur upp og gasprar um, oftar en ekki af mikilli vanþekkingu og fullt fordóma. En fordómar fara oftar en ekki saman við fáfræði – og í þessu Málefnamáli er mikið um hvoru tveggja. Fólk tjáir sig um málefni sem það hefur ekki hundsvit á, jafnvel fullyrðir hluti sem alls ekki eiga stoð í raunveruleikanum, á meðan óprúttnir aðilar fara með persónuupplýsingar þessara sömu einstaklinga líkt og skiptimynt í viðskiptum undirheima fjármálamógúla. Menn eru fengnir til að hóta, ljúga og svíkja vini sína; fólk sem hefur treyst, varið og unnið með þeim aðilum í langan tíma. Nú er nóg komið!
Ef við einhvern er að sakast í þessu Málefnamáli er það téður Ásgeir Ásgeirsson, sem oftast er kenndur við Ljóshraða. Leppur dómsmálaráðherra, fenginn til að hóta vinum sínum, ljúga að fólki sem honum treystir og bera milli lygar og ósannleik í þeim tilgangi einum að blekkja, svíkja og stela. Og þannig fór með Málefnin.com í vor; fólk sem treysti einum aðila var illa svikið, brennt og sært mjög djúpt. Nú á að halda því áfram – og get ég ekki þagað yfir því!
Að nafngreina einstakling er mjög alvarlegt; að færast undan ábyrgð en enn alvarlegra í mínum huga. Hingað til hef ég haldið hlífiskyldi yfir þessum Ásgeiri, sem virðist leika tveimur skjöldum á öllum vígstöðum, án þess að þurfa að bera ábyrgð á neinu, heldur situr undir vernd dómsmálaráðherra og – að mínu mati – vinnur skítverk fyrir þann fasista og aumingja sem Björn Bjarnason er í raun og veru. Hefur þessi Ásgeir – óbeint – komið til skila hótunum ráðherra til mín, um að það þýði ekkert fyrir mig að vera á móti þeirri löggjöf sem nú mun koma til Þings um internetið; lög sem enn meira skerða rétt okkar Netverja um einkalíf og frelsi á Netinu. Eitthvað sem ég mun berjast gegn, þrátt fyrir að vera undir ólöglegu eftirlitið lögreglu – og hafa verið gert það ljóst að ég eigi ekki að láta þá andstöðu mína í ljós! Hvar er málfrelsið, ef ég má ekki nota það til að berjast gegn ofríki Stjórnvalda og ráðherra?
Þau hjú sem reka vefinn, Alvaran.com, eru hið ljúfasta fólk sem ég kynntist í vor gegnum þennan sama Ásgeir, sem ég hafði kynnst áður á vettvangi Netverja sjálfra. Keli og Agný eru yndisleg, bæði tvö, fólk sem ég treysti fullkomlega fyrir mínum upplýsingum; fólk sem vill standa vörð um rétt okkar á Netinu, en ekki þeir einstaklingar sem óprúttnir náungar hafa lýst þeim hér á vefnum. Að ráðast á persónur þeirra er gróft og siðlaust, því oftar en ekki er það gert af vanþekkingu og er mjög óvægið. Hafa þessar árásir gengið svo nærri þeim að þau hafa átt erfiða tíma, ekkert ósvipað og Stefán (eigandi Málefnanna) átti sjálfur í vor, þegar hann bað um minn stuðning (reyndar með lygum og hálfsannleik) en fékk uns ég komst að hinu sanna. Að ráðast á Kela og Agný er mjög ósanngjart, því þau bæði vilja okkur Netverjum aðeins gott, standa vörð um málfrelsið og meta tjáningarfrelsi okkar ofar öllu, en um leið gera sér grein fyrir þeirri ábyrgð sem því frelsi fylgir. Eitthvað sem stjórnendur Málefnanna ættu að taka sér til fyrirmyndar.
Einu lygarnar sem ég hef orðið var við í þessu máli, eru lygar Stefáns, Cecil, Ásgeirs og svo þeirra fjölmörgu sem hafa úthúðað minni persónu og persónu þeirra sem reka Alvaran.com. Hingað til hefur Sannleikurinn verið minn skjöldur, eitthvað sem fólk gerir sér ekki grein fyrir né trúir, en þannig bara vinn ég; ég þarf að muna of mikið ef ég lýg, svo best er að nota Sannleikann, þá þarf ég lítið að muna annað en staðreyndir! Og staðreyndin er sú að lygar voru notaðar til að blekkja Netverja, eru notaðar enn og munu verða notaðar þangað til Netverjar gera sér grein fyrir lygunum, hvenær sem það verður. Því miður.
Ólafur Skorrdal
skáld
Þessi grein er alfarið á minni ábyrgð en ekki þeirra sem hýsa þennan vef. Hefur enginn fengið mig til að skrifa þessa grein nema sannfæring mín og trú mín á málfrelsið; trú mín á Netið og rétt okkar til að vera laus við eftirlit Stjórnvalda, í hvaða formi sem þau nefnast. Sannleikurninn mun sigra að lokum!
ÓS


















Nýjar athugasemdir