wordpress visitor counter

Stikkorða færslur ‘Ofbeldi’

Lögregla ráðamanna – Endurbirt

Með hverju árinu verður mér það ljósara að lögreglan er ekki fyrir okkur borgarana, heldur sem viljalaus verkfæri stjórnmálamanna, sem fara með réttindi okkar sem þeirra leikfang, líkt og þeir væri eigendur lýðræðisins. Þegar í raun þeir eru þjófar þess og níðingar. Enn og aftur sýnir lögreglan á sér sína réttu hlið, með ofbeldi og ósóma eins og þeim einum er lagið. Hingað til hefur mér ekki verið trúað, þegar ég hef reynt að fjalla um slík mál, og þau yfirleitt afskrifuð sem bull og þvættingur dópista; lygar til að reyna að fegra sína eigin sögu. Einnig hefur verið reynt að sverta mannorð mótmælenda, og jaðrar sú aðför stundum að landráði, þegar fjölmiðlungar leifa sér að apa upp vitleysuna í lögreglunni og trúa þeirra skýringum án nokkurrar gagnrýni; fjölmiðlungar sem þykjast eiga að vera okkar verndarar – hið fjórða vald lýðræðisins.

Lesa restina af þessari færslu →

01

05 2010

Opið bréf til sjóðsstjórnar Lífeyrissjóðs Verslunarmanna

Til þeirra er málið varðar. (opið bref til sjóðsstjórnar Lífeyrissjóðs Verslunarmanna)
Þar sem ég er sjóðsfélagi í Lífeyrissjóði Verslunarmanna, langar mig að fá upplýsingar um eftirfarandi:
1. Hverjir eru gjaldeyrissamningar LV
2. Hvert er verðbréfasafn LV
3. Hvert er tap LV vegna bankahruns síðasta árs
4. Hver er gjaldeyriseign LV
5. Hvað hefur LV tapað miklu á falli bankanna sl. haust.
Krefst ég þess, sem sjóðsfélagi frá 1983, að fá upplýsingar þessar hið fyrsta.
Ólafur Skorrdal
Bréf þetta – og svar vegna þess – verður birt á skorrdal.is og dreift til fjölmiðla.

22

08 2009

Lögregluofbeldi – Myndir og myndband

Læt myndirnar tala sínu máli:

Lögregluofbeldi - Iðnaðarráðuneytið - 070809

Lögregluofbeldi - Iðnaðarráðuneytið - 070809

Lögregluofbeldi - Iðnaðarráðuneytið - 070809 #3

Lögregluofbeldi - Iðnaðarráðuneytið - 070809 #4

Lögregluofbeldi - Iðnaðarráðuneytið - 070809 #5

Byltingin og börnin

Okkur er oft sagt, að “byltingin étur börnin sín”… Að vissu leiti má það vera rétt – en hið raunverulega gleymist oftast, þegar þessir frasi er notaður: Byltingin talar sjaldnast um börnin “sín”.

Hverjir eru það sem þjást mest í stríði og átökum, ef ekki börnin okkar? En er það næg ástæða til að aðhafast ekkert og láta kúgunina standa? Láta allt yfir sig ganga, til þess eins að vernda börnin okkar? Hver verður þá hin raunverulega framtíð þeirra, sem “land” okkar eiga að erfa? Er það sú “paradís” sem við viljum afkomendum okkar, hvar sem í flokki við erum? Það held ég ekki.

Svo eru til dæmi, þar sem “börnin okkar” eru misnotuð, í tilgangi, sem fáir njóta góðs af. Til dæmis “fíkniefnastríðið“, sem eytt hefur verið óhugnanlegu fé í, án nokkurs árangur – í raun aðeins til að “vernda börnin okkar“. En hver eru í raun fórnarlömb þessa “stríðs” Stjórnvalda gegn eigin þjóð? Eru það ekki einmitt “börnin” okkar; unga fólkið, sem getur ekki borið hönd yfir höfuð sér, vegna vanþekkingar sinnar á lögunum og réttindum sínum? “Stríð” sem flestir virðast samþykkja, en í raun er beint gegn réttarríkinu og lýðveldinu, í öllu sínu veldi?

Við viljum öll vernda börnin okkar, en stundum er okkur fengin vopn í hendur, sem frekar skaðar þeirra framtíð en verndar hana. Vopn, sem frekar berjast gegn frelsi þeirra og réttlæti – frelsi okkar allra – frekar en að byggja þau upp og gera að betri einstaklingum. Okkur er sagt ýmislegt, sem vekur ugg í brjósti okkar – sérstaklega þegar kemur að framtíð barna okkar. En sumt af því – því miður – er bara blekking, til þess eins að stýra hugarfari okkar í eina átt.

Það er hagur hverra stjórnvalda, að viðhalda lyginni og sjá til þess, að “þegnar” þeirra lifi í ótta, óvissu og ósætti. Aðeins þá, er hægt að stjórna því hvernig fólk hagar sér, upplifir “sannleikann” og lætur stjórnast af áróðri þeim, er frá Stjórnvöldum kemur. Þannig hefur því verið háttað frá alda öðli – og þannig er því háttað enn þann dag í dag. Meira að segja á Íslandi – hinu “óspillta”…

Íslensk stjórnvöld vilja ósætti og sundrung meðal okkar Borgaranna, því samstaða okkar gæti þýtt þeirra endalok; það má sjá á baráttunni gegn Stjórnarskrárbreytingum Sjálfstæðisflokksins – og ákvörðun núverandi Ríkisstjórnar um “ráðgefandi” Stjórnlagaþing og ESB kosningu. Þetta er allt saman samtrygging valdhafanna, þótt svo þeir kjósi að kalla sig “Samfylkingu”, “Sjálfstæðisflokk”, “Framsóknarflokk” eða “Vinstri-græna”; þetta er allt saman sama mafían, ef málin eru skoðuð djúpt ofan í kjölin.

Til þess að okkar bylting “éti” ekki börnin sín, þurfum við að læra að standa saman; læra að bera virðingu fyrir hvort öðru – og læra að bera virðingu fyri framtíð barna okkar og þeirra frelsi, hvort sem það er til orðs eða æðis. Við þurfum að læra að bera virðingu fyrir hvort öðru, skoðunum hvers annars, því annars munu “börn” okkar ekki læra að lifa í sátt og samlindi hvort við annað.

Öll viljum við að börn okkar hafi sama rétt til náms, heilbrigðis, lífernis og mannréttinda. Eða það vona ég svo sannarlega. Sum okkar hafa aðrar skoðanir á málunum, hverjum sé best treystandi til að framfylgja þeim réttindum. En ég held – ég vona – að við öll séum sammála að öll okkar börn eigi að lifa í áhyggjulausum heimi, þar sem þau þurfa ekki að eiga á hættu að þeirra ævistarfi sé stolið af þeim, heldur geta treyst því, að þeirra framlag til lífsins sé traust, hvaða skoðunum foreldrar þeirra aðhyllist. Þess vegna er það mín skoðun, að í raun viljum við öll það sama fyrir okkar börn, hvort sem við eigum þau eða ekki. Því þurfum við þá að rífast um hægri og vinstri? Því getum við ekki verið sammála um að færa börnum okkar þá bestu framtíð sem við mögulega getum – án þess að nokkur einstaklingur eða fyrirtæki geti rænt þau henni, án þess að VIÐ höfum nokkuð við því að segja?

Nú er tími til að leggja niður alla flokkadrætti í okkar samfélagi; þeir hafa sundrað okkur einum of lengi – og lagt samfélag okkar í rúst. Nú þurfum við, mínir kæru samlandar, að standa saman fyrir framtíð barna okkar – og ekki láta nein öfl í samfélaginu standa í vegi fyrir okkur. “Hægri” eða “vinstri” eru úrelt hugarfóstur lénsaflanna, sem hingað til hafa ráðið of miklu; framtíðarstefna er það sem ætti að ráða okkar hugsun.

Vissulega getur okkur greint á um, hvort Ríkið eigi að reka hitt eða þetta – en við hljótum að geta verið sammála um, að börnin okkar eigi þá bestu framtíð skilið, sem við getum boðið þeim. Hvaða skoðunum sem við aðhyllumst. Annað, mínir kæru samlandar, er bara hrein geðveiki.

Ef við getum ekki verið sammála um það, mun byltingin sannarlega éta börnin okkar – hvar sem við höldum að við stöndum í pólitíkinni. Og það væri vissulega hin versta gjöf, sem við gæfum börnum framtíðarinnar.

Stöndum saman! Byggjum betri framtíð!

Sjá einnig:

Nýja Kaupþing og skilanefnd Kaupþings telja…

Financial collapse: Confidential exposure analysis of 205 companies…

Icelandic bank Kaupthing threat to WikiLeaks over confidential large exposure report, 31 Jul 2009

To all members of Scandinavian Parliaments

Honourable members of Scandinavian Parliaments
My name is Olafur Skorrdal, a poet from Reykjavik, Iceland. For many years now, I have criticized the leaders of my country – and I am still at it, even after the elections last April. My politics are not to the left, nor to the right – my politics are to the future.
As you may know, we have had a bigger crises than any western nation has had. Our banking system lies in ruins – even our Central Bank is in really bad shape. Our politicians are not doing a great job; they protect more those who are to blame for all of this, rather than protecting the people they work for. Now, they have made two agreements, between Iceland, UK and the Netherlands, because of the IceSave scandal.
Our friends – our familynations in Scandinavia, have said (or so we are told by our government), that they will not assist Iceland, unless these issues will be resolved. I can understand that, but if those nations knew what has been signed (but not voted on yet, by Althingi), and how the content of this agreement was a secret – even from Althingi it self – they would change their mind and help us fight against such oppression. That is why, honourable members of the Scandinavian parliaments, I write you this letter.
As I understand the content of this agreement, Icelandic resources can – and will – go to either UK or the Netherlands, if Iceland can’t pay this money. We are talking about 750.000.000.000 isk, with 5,5% interest, in an environment where our currency just these last few weeks has made that number bigger by 50.000.000.000 isk. And it still keeps falling, due to Icelandic “former” bankers, that are working with our fishing industry to lower our currency rate, just to make a bit more money. All of this is done with the knowledge of our government, and nothing is done to stop this – nor is anything done to get assets from those liable for this IceSave fiasco; they are still cruising on their yachts, or flying in their private jets, spending the money they stole from people in UK and the Netherlands – and Germany, and Iceland.
There are two investigations ongoing, because of the financial meltdown last October. One by Althing, three people are heading that investigation – and a special prosecutor, assisted by Eva Joly, a Norwegian/French investigator, that the people trusts. Most of us, anyway. All is done to discredit her, and one member of the investigators board of Althingi – Ms. Sigriður Benediktsdóttir, PhD in economics from Yale University, working as Associate Chair at Yale. Both of those women have shown that they are working for the Icelandic public, and want to do the best they can to find out what happened. Even members of parties currently in the Government, has tried to discredit the work of Eva Joly.
Enclosed, I send you those two agreements, between Iceland, UK and the Netherlands. And ask you this: Would you agree such an agreement, hide it from both parliament and the public? If the answer is “no”; can I, ask you to stand with my country – with my people – against such an oppression, against such bullying of two big countries, that I thought were a part of our family of nations? My government has only one goal – emerge with EU; and they are ready to enslave the whole nation, just to get there. That is not fair, specially if we think of the future of my country – our children and their children.
I beg of you, to take a look at these papers I send you – and honestly ask with your heart: Would I do this to the future of my country – to the future of my children? And I know, honourable members of the Scandinavian Parliaments – our family – you will come to the same conclusion as I have; this is wrong.
In hope,
Olafur Skorrdal
poet

———————

Links to the PDF document:
IceSave-UK.pdf
IceSave-Holland.PDF

22

06 2009

Mellur og málæði

amsterdam-red_light_districtMikilvægasta þingmáli vetrarins – að sumra mati – var troðið í gegn um þingið á síðasta degi þess, með sömu aðferðum og Björn Bjarnason notaði um að troða sinni aðför að réttarríkinu. Lítil sem engin umræða, heldur frekleg framganga lýðræðisræningja, sem halda að þeir viti allt betur í hroka sínum og geti sett öðrum lög og reglur, sem þeir sjálfir eru svo fljótir að brjóta, sveigja og gleyma þegar það hentar þeim.

althingi-os2005Það eru til margskonar atvinnumellur – en þær sem setja okkur hinum lög, hafa engan siðferðislegan rétt til að segja okkur hvernig við eigum að sitja og standa; þær hafa sýnt það svo um munar, að þeim er ekki einu sinni treystandi fyrir að segja sannleikann, heldur er lygin þeirra helsta vopn til að halda völdum. Og síðan megum við ekki fá að setja þeim reglur – samt þykjast þær vinna fyrir okkur! Það bauð bara einhver annar hærra verð – og þær seldu sannfæringu sína. Eru þessar mellur eitthvað betri en aðrar?

Vér mótmælum!

Frú Dómsmálaráðherra,
Ragna Árnadóttir

Ég mótmæli hér með HARÐLEGA aðgerðum lögreglunnar við rýmingu húss við Vatnsstíg í Reykjavík í morgun og set alla ábyrgð á hörku lögreglunnar á þínar herðar, þar sem þú ert yfirmaður alls lögregluliðs í landinu um þessar mundir. Lít ég svo á, að þú ætlir að halda áfram verki kúgunnar og ógnarstjórnar forvera þíns og mun ekki á neinn hátt gefa þér neinn afslátt á gagnrýni héðan í frá. Annað hvort ert þú vanhæf sem dómsmálaráðherra, vegna vanþekkingar og reynsluleysis, eða vegna þess að þú vilt viðhalda þeirri ógnarstjórn sem forvera þínum var svo annt um. Allt fyrir auðvaldið – skítt með réttlætið! Ættir kannski að vera að eltast við ALVÖRU glæpamenn þessa lands, sem hafa komði þessari þjóð á heljarþröm, í stað þess að eltast bara við samloku- og tímaritaþjófa. Kannski málið sé þér bara ofvaxið?

Fordæmi ég hér með harðlega þessi vinnubrögð og andvaraleysi þitt í að takast á við slík vinnubrögð eins og þau sem þjóðin hefur fengið að upplifa nú í dag.

Ólafur Skorrdal
skáld

Það sem má ekki birta

Tveir blaðamenn Morgunblaðsins, ritstjóri Eyjunnar og Egill Helgason hafa fengið á sig kæru, fyrir að birta gögn af fundi í Glitni. Kærandi er Fjármálaeftirlitið, sem ég hélt að ætti að vera að hafa eftirlit með fjármálastofnunum en ekki fjölmiðlum. En, svona er Ísland öfugsnúið í dag.

Þar sem ég tel þessi gögn eiga fullkomið erindi við þjóðina alla hef ég ákveðið að birta myndir af skjalinu sem ég fann á vef Egils Helgasonar honum og öðrum blaðamönnum til stuðnings. Hvet ég aðra um að gera slíkt hið sama; látum ekki þagga niður í fólki sem þorir – hvaða skoðun við svo höfum á því fólki, persónulega eða pólitískt.

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

Hér má nálgast upprunalegu PDF skrána og sækja myndirnar:
PDF skráin: fundagerd300908.pdf
Myndirnar: fundagerd300908-jpg.zip

03

04 2009

Úlfur í sauðagæru

Ég er eflaust kommi – í besta falli sósíalisti. Var eitt sinn geðveikur frjálshyggjusauður, og trúði öllu því sem Flokkurinn sagði mér að trúa. Síðan þroskaðist ég – og tók upp sjálfstæða hugsun; slík iðja fyrirfinnst síst hjá ungmennum Flokksins.

Þegar ráðamenn þjóðarinnar ákváðu að leita til Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, varð mér billt við. Ég trúði því ekki, að “sjálfstæðismenn” ætluðu að afsala “sjálfstæði” þjóðarinnar á svo aumingjalegan máta. En það gerðu þeir – og því miður, mun þjóð mín og land mitt, sem mér er svo mjög annt um, þurfa að súpa seyðið af þeim aumingja- og gunguskap sem forystumenn Flokksins hafa sýnt gegnum tíðina.

Langar mig að benda á færslu hjá Smugunni[i] um þetta efni:

Ef lántökulandið er ríkt af auðlindum sem AGS eða önnur stórfyrirtæki ágirnast, og takist landinu að standa skil á greiðslum til sjóðsins, þá beitir sjóðurinn vöxtum sem vopni. Þeir hafa sjálfir rétt á að endurskoða vexti lánanna reglulega, og þar sem til þarf hafa þeir ekki hikað við að hækka vextina nógu mikið til að landið komist í vanskil. Þá er það leikur einn fyrir AGS að gera kröfu til auðlinda landsins, og selja þær í hendur erlendra fjárfesta sem blóðmjólka svo lántökulandið svo lengi sem þeir geta.

Og einnig hjá Nei.[ii] :

Þessi saga endurtekur sig í sífellu, og þegar liggja lönd eins og Argentína, Tanzanía, Ecuador, Jamaica, Íraq, Íran, Bolivia, Brasilía, Indland og Zimbabwe í valnum, ásamt fjölda annarra. Þessi lönd hafa öll misst fullræði sitt, tapað auðlindum í hendur erlendra fjárfesta sem hafa nauðgað landinu til að vinna þessar auðlindir. Lífsgæðin hafa minnkað, meðalaldur lækkað, ólæsi aukist og stærri og stærri hluti íbúa landana þurft að skrimta á upphæðum langt undir fátæktarmörkum.

Sama grein – sami sannleikur. Ég óttast framtíð þess lands sem ég elska; ég er reiður þeim gráðugu og sjálfselsku hálfvitum, sem neyddu okkur í þá stöðu sem við upplifum í dag. Þá ætti alla að setja undir lás og slá – en þeir stálu bara of miklu.

Ég óttast um framtíð lands míns og þjóðar – ég óttast að baráttan verði erfiðari en hún hefði þurft að verða. Ég óttast að land mitt verði mergsogið af enn gráðugri samfélagsþjófum en við sjálf höfum alið upp. Slíkt væri mér mikil sorg – ég, sem áður, vonast til að hafa rangt fyrir mér. Ég óttast samt annað.

Tilvísanir:
  1. Smugan.is – Úlfur í sauðagæru []
  2. Nei. – Úlfur í gjaldeyrissjóðsgæru []

13

02 2009

Lýðskurmari á atkvæðaveiðum

Ég vil að hér verði sett á fót sannleiksnefnd sem hefur það hlutverk að skoða þessi hlerunarmál bæði í fortíð og nútíð. Þetta hafa aðrar þjóðir gert og þær hafa reynt að læra af þessu.

Að mínu mati er þessi maður lítið annað en lýðskrumari, sem hefur talað fyrir netlögreglu og auknu eftirliti Ríkisins. Hann hefur ekki viljað hlusta á saðreyndir um magnaðri njósnir lögregluyfirvalda en hann getur nokkru sinni gert sér í hugarlund að hafi verið stunduð hér á landi síðustu áratugina – án heimilda dómstóla, með samþykki dómsmálaráðherra fyrrverandi, og hans forverum – að ég, eftir mín samkipti, eða samskiptaleysi, get ekki annað en flokkað þessi svör hans sem lýðskrum og kjaftæði.

Lögreglan sýnir sitt rétta andlit

Lögreglan er ekki lengur þjónar lýðræðisins, heldur kúgarar[i][ii] valdhafanna. Þarf að hafa fleiri orð um það?

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

Tilvísanir:
  1. Sjá: Ofbeldisfullir lýðræðisþjónar – RÚV.is []
  2. Sjá: Lúðrarnir á skilorði – Vísir.is []

11

02 2009

Switch to our mobile site