Var hann ekki kosinn í almennum þingkosningum? Býr hann ekki í sama samfélagi og ég, þar sem samkeppni er ekki litin hornauga, heldur samþykkt sem rekstrargrunnur – þótt svo farið hafi lítið fyrir slíkri “samkeppni” síðustu áratugina? Á hvaða öld er Jón Bjarnason “ráðherra” staddur? Er sú öld ekki liðin – fyrir löngu? Það er sem mig minnir það, en undanfarið hefur mér ég frekar vera staddur í samfélagi á sýru, frekar en í alvöru samfélagi fólks sem stefna sínu lífi á framtíðina…

Smellið til að stækka
Lög nr. 44/2005 – 11.gr:
Misnotkun eins eða fleiri fyrirtækja á markaðsráðandi stöðu er bönnuð.
Misnotkun skv. 1. mgr. getur m.a. falist í því að:
a. beint eða óbeint sé krafist ósanngjarns kaup- eða söluverðs eða aðrir ósanngjarnir viðskiptaskilmálar settir,
b. settar séu takmarkanir á framleiðslu, markaði eða tækniþróun, neytendum til tjóns,
c. viðskiptaaðilum sé mismunað með ólíkum skilmálum í sams konar viðskiptum og samkeppnisstaða þeirra þannig veikt,
d. sett sé það skilyrði fyrir samningagerð að hinir viðsemjendurnir taki á sig viðbótarskuldbindingar sem tengjast ekki efni samninganna, hvorki í eðli sínu né samkvæmt viðskiptavenju.
Lög nr. 44/2005 – 12.gr:
Samtökum fyrirtækja er óheimilt að ákveða samkeppnishömlur eða hvetja til hindrana sem bannaðar eru samkvæmt lögum þessum eða brjóta í bága við ákvarðanir skv. 16.–18.
Lög nr. 44/2005 – 33.gr:
Samningar, sem brjóta í bága við bannákvæði laga þessara, eru ógildir.
http://www.althingi.is/lagas/nuna/2005044.html
Lög nr. 44/2005 – 11.gr:
Misnotkun eins eða fleiri fyrirtækja á markaðsráðandi stöðu er bönnuð.
Misnotkun skv. 1. mgr. getur m.a. falist í því að:
- a. beint eða óbeint sé krafist ósanngjarns kaup- eða söluverðs eða aðrir ósanngjarnir viðskiptaskilmálar settir,
- b. settar séu takmarkanir á framleiðslu, markaði eða tækniþróun, neytendum til tjóns,
- c. viðskiptaaðilum sé mismunað með ólíkum skilmálum í sams konar viðskiptum og samkeppnisstaða þeirra þannig veikt,
- d. sett sé það skilyrði fyrir samningagerð að hinir viðsemjendurnir taki á sig viðbótarskuldbindingar sem tengjast ekki efni samninganna, hvorki í eðli sínu né samkvæmt viðskiptavenju.
Lög nr. 44/2005 – 12.gr:
Samtökum fyrirtækja er óheimilt að ákveða samkeppnishömlur eða hvetja til hindrana sem bannaðar eru samkvæmt lögum þessum eða brjóta í bága við ákvarðanir skv. 16.–18.
Lög nr. 44/2005 – 33.gr:
Samningar, sem brjóta í bága við bannákvæði laga þessara, eru ógildir.

Smellið til að stækka - Mæli með lestri athugasemda...

Smellið til að stækka
Og svo kemur rúsínan í pylsuendanum:

Smellið til að stækka
Stjórnarskrá Íslands:
Lög nr. 33/1944 – 65.gr:
Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.
Er ekki eitthvað bogið við framsögu þessa steingerfings? Viljum við, í okkar samfélagi í dag, virkilega hafa slíkan einstakling í Ríkisstjórn? Í alvöru?
Nýjar athugasemdir