wordpress visitor counter

Stikkorða færslur ‘SÁÁ’

Skamm! Þórarinn Tyrfingsson

„Góður mælikvarði á hvert stefnir í þessum málum eru ót[í]mabær dauðsföll hjá áfengis- og vímuefnafíklum sem hafa verið á Vogi. Auðvitað deyja fleiri úr áfengis- og vímuefnafíkn[] ótímabært en þeir sem í gagnagrunninn eru skrá[ð]ir. Þessi skráning tekur þó til svo margra að hún segir okkur ákveðið og marktækt hvert stefnir.” (Þórarinn Tyrfingsson, leiðari SÁÁ blaði 2010, 1.tbl)

Fjárlagagerð fyrir næsta ár stendur sem hæst yfir sumarið, svo hægt verði að leggja fjárlög fyrir Alþingi fyrir áramót. Þetta er heilmikil vinna og mikilvæg, svo stjórnmálamenn viti í hvað þeir ætla að eyða aurunum okkar á næsta ári – og hversu mörg strá þau geta sett á bak asnanna, áður en þeir sligast undan.

Líkt og lóan boðar vorkomuna – boða fréttir frá SÁÁ um hinar ýmsu hörmungar í vímuefnamálum, törn hjá þeim einstaklingum sem vinna að fjárlagagerð Alþingis. Lesa restina af þessari færslu →

07

06 2010

Opið bréf til Landlæknis vegna kannabisumræðunnar – Kvörtun vegna umfjöllunar SÁÁ

Hr. Landlæknir
Matthías Halldórsson

Vegna fréttar á MBL.is af tölfræði og staðhæfingum SÁÁ varðandi meðferð á kannabisfíkn, langar mig til að koma á framfæri eftirfarandi athugasemdum:

1) Eins og lesa má á vef SÁÁ eru engar rannsóknir sem styðja þær fullyrðingar sem koma fram í þessari blaðagrein, heldur eru notaðar villandi og beinlínis rangar staðhæfingar um kannabis og tengsl þess við önnur harðari vímuefni.

2) Yfirlýsingar yfirlæknis Vogs, Þórarins Tyrfingssonar, eru alls ekki studdar neinum vísindalegum rökum, heldur notar hann einungis tölfræði SÁÁ/Vogs, sem, hið minnsta, er lituð fjárhagshagsmunum hans sjálfs – í versta falli til þess eins að blekkja fólk, sem treystir orðum hans vegna þess í hvaða stöðu hann er. Slíkt hlýtur að vera ámælisvert af hvaða lækni sem er, að misnota stöðu sína svo bersýnilega til að koma sínum pólitískum sjónarmiðum á framfæri.

3) Yfirlæknir SÁÁ sýnir mikla fordóma varðandi þá er vilja ræða þessi mál opinskátt, eins og heyra mátti í útvarpsviðtali við hann í þættinum Reykjavík síðdegis, þann 24. mars sl. Þar gerir yfirlæknirinn sig sekann um alvarlega fordóma og ósannindi. Engu að síður hafa læknasamtök, Landlæknisembættið og aðrir aðilar, sem mögulega gætu leiðrétt þessar rangfærslur ekki látið í sér heyra – fyrr en hugsanlega núna.

4) Þær rangfærslur sem yfirlæknir á Vogi kemst upp með í Kastljósviðtali, fimmtudaginn 26. marssl. eru slíkar, að ég get ekki annað en kvartað yfir þeim. Sú fyrri er: “Það er ekki hægt að nota kannabisreykingar sem lyfjameðferð,” Þetta er beinlínis rangt hjá Þórarni Tyrfingssyni. Kannabis hefur verið notað sem lyf í yfir 6.000 ár og er enn notað, t.a.m. í Hollandi, Belgíu, Kanada og 11 ríkjum Bandaríkja Norður Ameríku, einmitt í sinni náttúrulegri mynd – í landi, þar sem allar þessar ofsóknir hófust fyrir tæpri öld síðan. Einnig segir Þórarinn: “Það hefur því miður ekkert komið út úr þessu [tilraunum að búa til lyf úr kannabis] þó að menn hafi eytt miklum peningum í það og miklum tíma.”

Þetta er að sjálfsögðu ekki rétt. Þrenn kannabislyf eru til í dag ávísuð af læknum til sjúklinga:
Sativex (http://www.gwpharm.com/);
Marinol (http://www.solvaypharmaceuticals-us.com/newsroom/pressreleases/0,,14591-2-0,00.htm) og
Cesamet (http://www.revolutionhealth.com/drugs-treatments/cesamet).

Með fullyrðingum sínum hefur Þórarinn Tyrfingsson vegið að starfsheiðri lækna víðsvegar um heim. Gefið í skyn að þeir stundi skottulækningar, svo ekki sé minnst á að hann gerir lítið úr öllum þeim sjúklingum sem njóta góðs af kannabislyfjum í veikindum sínum. Er ekki orðið tímabært að ræða þessi mál af yfirvegun og með hliðsjón af vísindalegum rannsóknum? Hvernig er það; er það ekki réttur skilningur hjá mér, að allir læknar og stofnanir heyri undir Landlækni? Það er að segja ef þeir halda fram röngum staðreyndum, beri Landlæknisembættinu að leiðrétta þær opinberlega og jafnvel víta viðkomandi stofnun/lækni?

Með virðingu og vinsemd,
Ólafur Skorrdal
Kannabis.net

Rannsóknir og skýrslur:
Cannabis: Our Position for a Canadian Public Policy:
http://www.parl.gc.ca/common/Committee_SenActivity.asp?&Parl=37&Ses=1&comm_id=85&parl=37

The Berckley Foundation:
http://www.beckleyfoundation.org/science/research.html#cannabis

DrugWarFacts – Gateway Theory:
http://drugwarfacts.org/cms/?q=node/43

Afrit sent til:
Heilbrigðisnefndar Alþingis
Nefndarritara heilbrigðisnefndar Alþingis
Fréttastofa Ríkisútvarpsins
Síðdegisútvarp Rásar 2
Fréttastofa Stöðvar 2
Kastljós – RÚV
Morgunblaðið – Netútgáfa
Morgunblaðið – Ritstjórn
DV – Ritstjórn
Fréttablaðið – Ritstjórn
Visir.is – Ritstjórn
Aftaka – Netmiðill
Eyjan – Ritstjóri
Nei. – Ritstjóri
Leyniþjónustua Götunnar
AMX.is
Spegillinn – Rás 1
Smugan.is

Egill Helgason, Silfur Egils – RÚV/Eyjan
Sigmar Guðmundsson, Kastljós – RÚV – Sjónvarp
Friðrik Páll Jónsson, Spegillinn – RÚV – Rás 1
Gunnar Gunnarsson, Spegillinn – RÚV – Rás 1
Jón Guðni Kristjánsson, Spegillinn – RÚV – Rás 1
Freyr Eyjólfsson – Síðdegisútvarp – RÚV – Rás 2
Linda Blöndal – Síðdegisútvarp – RÚV – Rás 2
Guðmundur Pálsson – Síðdegisútvarp – RÚV – Rás 2
Björg Eva Erlendsdóttir – Smugan.is
Elías Jón Guðjónsson – Smugan.is

Ísland í dag?

Ég beið spenntur eftir því að Þórarinn Tyrfingsson kæmi á skjáinn og segði mér allt það sem hann vissi um kannabis. Vissi ég fyrirfram hvaða afstöðu hann hefði, því ég þekki manninn af góðu einu og veit hve fróður hann er um vímuefni og notkun þeirra. Tel ég hann vera einn fremsta sérfræðing í þeim málum hér á landi. Þessvegna brá mér eilítið þegar hann fór að dæma og vera með leiðindar rangfærslur, eitthvað sem ekki fór manni í hans stöðu. Einnig var hann með alhæfingar og staðreyndavillur sem ekki hæfa. Ég hef reynt að fá að svara þessum staðhæfingum á sama vettvangi, en því miður fær aðeins eitt sjónarmið að ríkja á fréttastofu Stöðvar 2, því beiðni minni um að fá að svara hefur verið svarað með þögninni og hafa góðir vinir dregið mig á asnaeyrunum. Ætla ég mér því að svara Þórarni í þessari grein og reyna að fá hann til að svara þeim spurningum sem fyrir hann verða lagðar.

Lesa restina af þessari færslu →

27

04 2003

Kannabis og fjölmiðlar

Mikil umræða hefur skapast eftir opnunar á Cannab.is og viðtals við forsvarmenn þess vefar í Ísland í býtið fyrir nokkrum dögum en má segja að þessi umræða hafi verið frekar einsleit og fordómafull. Miklar og mis málefnalega umræður fara fram á vefnum sjálfum, en utan hans er umræðan aðeins frá einni hlið; bannhliðinni. Og þrátt fyrir ítarlegar tilraunir, símtöl og bréfaskriftir, hefur ekki tekist að fá tíma á ljósvakamiðli til þess að svara þeim aðdróttunum og rangfærslum sem þar hafa fengið að vaða uppi mótmælalaust. Finnst mér það með ólíkindum að fréttamenn þessa lands skuli leifa sér að hafa svona einslita umræðu án þess að hleypa þeim röddum sem tala fyrir lögleiðingu að, því nóg getum við vitnað í skýrslur, rannsóknir og kannanir, alveg eins og hinir.

Lesa restina af þessari færslu →

29

03 2003


Switch to our mobile site