Stikkorða færslur ‘Útgáfa’
100 í 20.000
Ég veit að þetta er engin jólabóka-metsala, en það vantar ekki nema 100 aðila til að sækja netbókina Engillinn minn, til að hún verði tvöfölld “metsölubók“.
Bókin var gefin út í júli 2005 og hefur verið aðgengileg á vefnum síðan þá. Á fyrsta sólarhringnum sóttu bókina rúmlega 5.500 aðilar eintak af bókinni – og á fyrsta mánuðinum sóttu hana yfir 11.000 einstaklingar. Þrátt fyrir góða umsögn nokkra gagnrýnanda, hefur bókin ekki fengist gefin út.
Hér eru orð tveggja þeirra:
[Ég] hef aldrei séð, lesið eða heyrt annað mannanna verk sem hafa haft jafn djúp og mikil áhrif á mig og þessi smásaga þín. Fyrir utan stjarnfræðilega góðar mannlýsingar, tilfinningalýsingar og dýpt þá er söguþráðurinn gjörsamlega gatalaus og fullkominn.
Það var ekki möguleiki fyrir mig að fara að sofa fyrr en ég hafði lesið alla bókina. Meðan á lestri stóð bæði hló ég, hágrét og tók fyrir andlitið af undrun.
Þessari bók þarf að tryggja farsælt líf, með eins góðri útgáfu og hægt er. Hún á erindi til svo margra, þó ekki þeirra sem veikir eru fyrir hjartað eða tilfinninganæmar sálir því hún getur reynst þeim bannvæn.
Þessi saga er klárlega með þeim bestu sem hægt væri að koma hér út!
“Fannar”
Þetta er með því besta [handriti] sem ég hef lesið í mjög langan tíma.
Þessa bók þarf að gefa út – en enginn útgefandi mun gefa hana út.
Kolbrún Bergþórsdóttir
Bókin er í PDF-formi, sem hægt er að lesa með Acrobat Reader.
Statcounter.com hefur séð um talninguna frá upphafi, eins og á öllu því efni sem ég hef gefið út frá árinu 2003.



















Nýjar athugasemdir