Um Skorrdal
Fæddur á Fæðingarheimilinu Reykjavík í ágúst 1970. Er því ljón – og hundur í því Kínverska. Ólst upp í Fossvoginum og á Barnadeild Hringsins, flutti síðan í Breiðholtið 1981 og bjó þar í nærri 20 ár.
Hef starfað við ýmislegt, m.a. kjötvinnslu, prentun, sem gjaldkeri, barþjónn, kokkur, hótelstarfsmaður, sjómaður, aðstoðarmaður kirkjuvarðar, framkvæmdarstjóri netfyrirtækis, bílstjóri, vaktstjóri, sölumaður tölvubúnaðar, viðgerðarmaður tölvubúnaðar, forritari, hönnuður, við kortagerð og umbrot, myndvinnslu, tölvukennslu, svo eitthvað sé nefnt.
Ég hef komið nærri útgáfu bóka, m.a. Hringadróttinssögu sem Fjölvi gaf út á sínum tíma ásamt nokkrum fleiri bókum sem sú útgáfa hefur gefið út. Hef einnig unnið sjálfstætt í tölvugeiranum, sem ráðgjafi og í uppsetningum á búnaði í prentsmiðjum, við kennslu, hugbúnaðargerð og fleira. En það er langt síðan.
Lagði stund á orgelnám hjá Orgelskóla Yamaha og kláraði þar 5. stig og lauk með burtfarartónleikum; lærði örlítið í grunnteikningu, markaðsfræði og söng, en þar með er mín skólaganga upp talin að mestu. Hef sótt nokkur námskeið, m.a. hjá Dale-Carnegie og Félagsmálaskóla alþýðu. Lærði auvitað á bíl, en finnst best að taka strætó.
Hef nokkuð komið nærri félags- og trúmálum á síðustu áratugum, m.a. sat í stjórn æskulýðsfélagsins Sela 1984-86, síðan í fyrstu stjórn ÆSKR (Æskulýðssamband Kirkjunnar í Reykjavíkurprófastdæmi/um) 1987-88. Stofnfélagi og stjórnarmaður Netverja árin 1997-1999. Ritstjóri skólablaðs Iðnskólans og í miðstjórn skólafélagsins veturinn 1989-90. Söng í kirkjukór Seljakirkju um nokkurra ára skeið og einnig í Skagfirsku söngsveitinni í nokkur ár á síðasta áratug síðustu aldar og sat einnig í stjórn þeirrar söngsveitar síðasta árið. Var í kjörstjórn í Ölduselsskóla (Seljahverfi) á árunum 1986 til 2002.
Hef gefið út eftirfarandi hugverk:
1991 – Sönghefti Maríukirkjunnar í Breiðholti, (Kaþólska kirkjan á Íslandi)
1996 – Kort af Miðgarði, sögusvið Hringadróttinssögu (Fjölvi ehf, útgáfufélag)
1997 – Ferðalag, ljóðabók (Bragabót-útgáfufélag)
2005 – Sögur sálar, ljóðabók (Bragabót-útgáfufélag)
2005 – Engillinn minn, skáldsaga (Bragabót-útgáfufélag)
2005 – First Contact, geisladiskur (BoogieMan-Productions)
2005 – Darker Times, myndband (BoogieMan-Productions/Studio Sel)
2006 – Watch Me, myndband fyrir Palindrome (BoogieMan-Productions)
2007 – Sjálfstæðisfasismi, myndband (BoogieMan-Productions)
2008 – Lýðræði fjöldans, ritsafn (Bragabót-útgáfufélag)
2010 – Skuggi af skáldi, ljósmyndaljóð (Bragabót-útgáfufélag)
Mynd í haus: Vornótt yfir Skarðsheiði © Skorrdal 2005
Höfundarmynd: Skorrdal, © Fríða Eyland 2007
Öll skrif á þessu vefsvæði eru mín, nema annað sé tekið fram. Ekki má birta þau, að hluta eða í heild, nema að fá skriflegt leyfi höfundar. Öll hljóðritun og/eða endurprentun til dreifingar í tímaritum, félagsritum eða dagblöðum er með öllu óheimil án skriflegs leyfis höfundar.
Tónlist og myndbönd eru einnig háð höfundarrétti. Má hlaða niður þessum verkum til einkanota en ekki til fluttnings á opinberum vettvangi, s.s. í útvarpi, sjónvarpi, skjá- eða netvarpi, án skriflegs leyfis höfundar.
Athugasemdir eru á ábyrgð hvers höfundar sem þær skrifa og áskil ég mér rétt til að eyða athugasemdum ef þær reynast særandi eða á einhvern hátt brjóta í bága við íslensk lög.
skorrdalssetur(á)gmail.com
















Nýjar athugasemdir